Jafntefli á St. James Park

0
699

Sigurganga Tottenham í úrvalsdeildinn tók enda á sunnudaginn var þegar liðið heimsótti Newcastle á St. James Park.  Lokatölur 2-2 þar sem Tottenham komst tvisvar yfir í leiknum.  Mörk Tottenham skoruðu Van Der Vaart og Defoe.

Fyrri hálfleikur á sunnudaginn var ekki mikið fyrir augað,  en Tottenham komst þó yfir með marki frá Van Der Vaart úr vítaspyrnu á 40. mínútu sem dæmd var eftir að Adebayor var felldur í teignum.  Staðan í leikhléi var 0-1 fyrir Tottenham.  Eftir einungis þriggja mínútna leik í seinni hálfleik hafði Newcastle jafnað og var þar að verki Demba Ba eftir góða fyrirgjöf frá vinstri.  Leikurinn í járnum og allt gat gerst.  Seinni hálfleikur var mun fjörugri en sá fyrri. 

defoe_vs_newcastle.jpg

Defoe kom inná sem varamaður fyrir Van Der Vaart á 63. mínútu og aðeins fimm mínútum síðar hafði hann komið Tottenham yfir 1-2,  með góðu skoti fyrir utan teig neðst í hornið.  Lið Tottenham fékk svo ágætis færi á að komast í 1-3 í tvígang en ekki gekk það upp.  Það var svo þegar fjórar mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma að Newcastle jafnaði leikinn 2-2.  Var þar að verki varamaðurinn Shola Ameobi með þrumufleig frá vítateigslínu vinstra megin sem steinlá í fjærhorninu.  Bæði lið fengu svo tækifæri til að taka öll stigin þrjú á lokamínútunum en allt kom fyrir ekki – lokatölur 2-2 sem verða að teljast nokkuð sanngjörn úrslit í þessum leik.

king_meiddur.jpgSlæm tíðindi fyrir Tottenham voru meiðsli Ledley King sem þurfti að yfirgefa völlinn á 30. mínútu.  Var búist við að hann yrði lengi frá,  en svo hefur komið á daginn að meiðslin voru ekki eins slæm og búist var við í fyrstu og talið að hann verði um 4. vikur frá.

Lið Tottenham á sunnudaginn :

Friedel – Walker – King ( Bassong 30 )- Kaboul – Ekotto – Bale – Livermore – Parker – Modric – Van Der Vaart ( Defoe 63 ) – Adeybayor