Sigur í Evrópudeildinni

0
591

Tottenham vann sinn annan sigur í röð í Evrópudeildinni þegar lið Rubin Kazan frá Rússlandi kom í heimsókn á fimmtudaginn var.  Lokatölur 1-0 þar sem Pavluychenko skoraði eina mark leiksins, og var það mark svo sannarlega glæsilegt.

Harry Redknapp hélt áfram að leyfa þeim yngri að spreyta sig í Evrópudeildinni ásamt einhverjum leikmönnum sem hafa fengið að spila minna.

Lið Rubin Kazan var oft á tíðum sterkara á vellinum og átti lið Tottenham í mestu vandræðum með lið Rubin Kazan.  Gomes kom í markið og átti fínan leik og varði nokkrum sinnum mjög vel.  Í seinni háfleik leist Harry greinilega ekki á blikuna og sendi inná Modric , Kaboul og Ekotto sem varamenn.

roman___rubinkazan.jpgMark Pavlyuchenko kom beint úr aukaspyrnu á 33. mínútu leiksins,  aukaspyrna sem Tottenham fékk á miðjum D-boganum á vítateignum.  Pavlo var ekkert að skafa utan af því , og hamraði boltann upp í samskeytin hægra megin… boltinn fór í þverslánna alveg út við stöng og þaðan niður í hliðarnetið.  Sannkallað draumamark og eflaust með þeim betri sem hafa verið skoruð í gegnum tíðina á White Hart Lane.  Liðið er þá komið með 7 stig í A-Riðli keppninnar , með tvo sigra og eitt jafntefli.

Lið Tottenham í leiknum :

Gomes – Basson – Walker – Rose – Lennon ( Modric 73 ) – Livermore – Sandro ( Kaboul 73 ) – Carroll – Pavlyuchenko – Giovani ( Ekotto 65 ) – Defoe

Varamenn : Cudicini – Townsend – Falque – Kane

.

.