Erfiður sigur á Blackburn

0
696

Tottenham sigraði lið Blackburn á sunnudaginn var með tveimur mörkum gegn einu.  Leikið var á heimavelli Blackburn , Ewood Park.  Bæði mörk Tottenham í leiknum skoraði Van Der Vaart sem hefur verið mjög heitur upp á síðkastið ( 5. markið í fjórum leikjum ).  Þetta var mjög erfiður sigur enda lið Blackburn ekki auðvelt heim að sækja.

Tottenham byrjaði leikinn betur og eftir 15. mínútna leik komst Tottenham yfir með góðu marki frá Van Der Vaart.  Kyle Walker átti þá frábæran sprett upp hægri vænginn , komst upp að endamörkum og sendi góða sendingu út í teig þar sem Van Der Vaart var mættur og setti boltann hnitmiðað í fjærhornið – óverjandi fyrir fyrrv. markvörð Tottenham ,  Paul Robinson. Þessi sprettur hjá Walker var alveg frábær og þarna er Tottenham komið með frábæran bakvörð sem á vonandi eftir að spila í mörg ókomin ár með liðinu.

Tottenham hélt áfram að sækja en Blackburn liðið hefur á að skipa nokkrum skemmtilegum leikmönnum ( ætla að nefna sérstaklega Hoilett sem var fannst vera mjög góður í þessum leik )  og svo eru þeir með nokkra stóra og sterka leikmenn inn á milli sem eru erfiðir við að eiga í föstum leikatriðum.  Það var einmitt upp úr einu slíku,  aukaspyrnu sem lið Blackburn jafnaði leikinn.  Boltinn barst þá til Formica í miðjum vítateig Tottenham eftir barning í teignum og setti hann boltann efst í markhornið , þar sem Friedel var frosinn á línunni og átti ekki sjéns.  Tottenham voru líklegri það sem eftir lifði háfleiks , en staðan í hálfleik var 1-1.

blackburn_tottenham.jpgEftir 8 mínútna leik í síðari hálfleik komst Tottenham yfir á nýjan leik,  og aftur skoraði Van Der Vaart.  Boltinn barst af Ekotto til hans fyrir utan teig og átti hann flot skot sem fór í góðum boga í nærhornið,  vel klárað og staðan orðin 1-2 Tottenham í vil.

Bæði lið fengu bærileg færi það sem eftir lifði leiks og var varamaður Blackburn , Yakubu nokkrum sinnum aðgangsharður uppvið mark Tottenham án þess þó að skora.  Leikurinn fjaraði út og sigur Tottenham staðreynd.

Þessi sigur var erfiður og mikilvægur.  Liðið komst aftur á beinu brautina eftir jafntefli við Newcastle helgina á undan.  Tottenham liðið er núnan komið í 5. sæti deildarinnar,  aðeins þremur stigum á eftir Chelsea og Newcastle sem sitja í 3-4 sætinu , og Tottenham á leik til góða á heimavelli gegn Everton.

Lið Tottenham í leiknum :

Friedel – Walker – Bassong – Kaboul – Ekotto – Lennon ( Rose 70 ) – Modric – Parker – Bale – VdV ( Defoe 88 ) – Adebayor

Varamenn : Cudicini – Livermore – Sandro – Townsend – Pavluychenko

.

.