Tottenham lék fyrir um viku síðan við lið QPR og var leikið á White Hart Lane , heimavelli Tottenham. Lokatölur voru 3-1 þar sem Bale skoraði tvívegis og Van Der Vaart setti eitt. Tottenham liðið spilaði mjög vel í þessum leik að stærstum hluta og hefðu verðskuldað átt að vinna stærri sigur.
Tottenhamliðið var miklu betra í fyrri hálfleik og komust yfir 1-0 eftir 20 mínútna leik þegar Bale skoraði með góðu skoti úr teignum eftir góðan undirbúning Lennon og VdV. 13 mínútum síðar, eða á 33. mínútu komst Tottenham í 2-0 þegar VdV fékk boltann óvaldaður í miðjum vítateig QPR og setti hann af öryggi í hornið. Boltann fékk VdV frá King sem hafði átt mjög misheppnað skot fyrir utan teig sem endaði á VdV sem tók mjög vel á móti boltanum og skoraði flott mark.
Staðan í leikhléi var 2-0.
Síðari hálfleikinn byrjaði lið QPR af krafti og gerðu sig líklega til afreka. Það var svo á 62. mínútu sem QPR minnkaði muninn í 2-1 þegar Bothroyd skoraði með skalla af stuttu færi eftir undirbúning Heiðars Helgusonar. Við þetta mark vaknaði Tottenhamliðið af værum blundi og hófu að spila fínan fótbolta á nýjan leik. 10 mínútum eftir mark QPR gerði Bale svo sitt annað mark í leiknum og kom Tottenham í 3-1. Bale og Lennon spiluðu vel fyrir utan teiginn og að lokum átti Bale flott skot við vítateigslínuna sem Kenny í marki QPR kom engum vörnum við. Bæði lið fengu færi það sem eftir var leiks en fleiri urðu mörkin ekki – 3-1 sigur Tottenham staðreynd.
Tölfræði úr leiknum.
Með boltann
Tottenham 58 % QPR 42 %
Skot á mark
Tottenham 13 QPR 8
Skot framhjá
Tottenham 9 QPR 4
Hornspyrnur
Tottenham 4 QPR 8
Lið Tottenham
Friedel – Ekotto – King – Kaboul – Walker – Bale – Parker ( Sandro 86 ) – Modric – Lennon – VdV – Adebayor
Varamenn: Cudicini – Gallas – Bassong – Livermore – Pavlyuchenko – Defoe
BÓ






