Tap í Evrópudeildinni

0
604

Lið Tottenham fór á Road Trip í síðustu viku og heimsótti lið Rubin Kazan í Rússlandi.  Það þarf ekki að eiga mörg orð um þennan leik sem tapaðist 1-0.  Tottenham voru miklu lakari í þessum leik og átti Cudicini í marki Tottenham stórleik og kom í veg fyrir stærra tap.

Tottenham gerði 11 breytingar á byrjunarliðinu frá leiknum gegn QPR … liðið blandað af leikmönnum sem hafa verið að spila minna og undir leikmenn.  Gallas og Pienaar voru að spila í fyrsta sinn á tímabilinu 

Leikurinn var í raun einstefna að marki Tottenham,  en lið Rubin Kazan átti 10 skot á markið gegn 1 skoti hjá Tottenham á markið.

Lið Tottenham : Cudicini – Gallas ( Parrett 73 ) – Bassong – Fredericks – Townsend – Pienaar – Livermore – Carroll – Falque – Defoe – Pavlyuchenko ( Kane 75 )

Varamenn : Gomes – Stewart – Nicholson – Pritchard – Lancaster

.

.