Frábær útisigur á Fulham

0
864

Síðasti leikur Tottenham í deildinni fór fram sunnudaginn 6. nóvember og var leikið gegn Fulham á Craven Cottage.  Lokatölur voru 1-3 Tottenham í vil þar sem Fulham voru betri aðilinn í leiknum en lið Tottenham fór með stigin þrjú heim engu að síður.  Bale , Lennon og Defoe skoruðu mörk Tottenham í leiknum.

fulham_-_tottenham__bale_lennon.pngLeikurinn var ekki nema um 10 mínútna gamall þegar Tottenham skoraði fyrsta markið.  Eftir gott spil Tottenham , fékk Lennon boltann hægra megin í vítateignum og átti frábæra fyrirgjöf sem markvörður Fulham náði að koma hendi í , boltinn fór til Bale sem tók við boltanum og þrumaði í markið með viðkomu í varnarmanni úr þröngu færi.  Flott mark hjá Tottenham.   Fulham menn voru hættulegir fram á við , en Friedel í marki Tottenham var vandanum vaxinn og varði allt sem á markið kom.  Það var svo undir lok fyrri hálfleiks sem Tottenham komst í 0-2 með marki Lennon.  Lennon og Bale spiluðu frábærlega upp vinstri kantinn sem endaði á því að Lennon kom á fullri ferð inn í teiginn með varnarmann fyrir framan sig ,  fíflaði varnarmanninn upp úr skónum og skoraði með góðu vinstri fótarskoti í fjærhornið algerlega óverjandi.

Fulham byrjaði seinni hálfleikinn af krafti og fengu urmul af færum en ekki tókst þeim að skora.  Svo kom að því að á 57. mínútu að Kaboul varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark og minnkaði þar með muninn í 1-2.  Áfram hélt Fulham að sækja og jöfnunarmarkið lá í loftinu.  Friedel bjargaði oft og mörgum sinnum og eins bjargaði King frábærlega á línu í eitt skiptið.  Fulham átti einnig að fá víti í lokin þegar Walker handlék boltann þar sem hann lá á vellinum , en ekkert var dæmt.   Það var svo algerlega gegn gangi leiksins að Defoe skoraði rétt fyrir leikslok eftir góðan undirbúning Adebayor og gulltryggði stigin þrjú.

Tottenham spilaði nokkuð vel í fyrri hálfleik,  en í þeim síðari sáu þeir varla til sólar og hreint með ólíkindum að liðið skyldi vinna þennan leik, en stigin þrjú tökum við með glöðu geði.

fulham_-_tottenham_-_friedel.jpgMaður leiksins án nokkurs vafa var Friedel í markinu sem varði að ég held einhverja 12 bolta.

Lið Tottenham í leiknum :

Friedel – Walker – Kaboul – King – Ekotto – Lennon ( Sandro 78 ) – Parker – Modric – Bale – VdV ( Defoe 66 ) – Adebayor

Varamenn :   Cudicini – Bassong – Corluka – Livermore – Pienaar.

Tölfræði úr leiknum.

Með boltann

Fulham 53 %      Tottenham 47 %

Skot á mark

Fulham 20          Tottenham 8

Skot framhjá

Fulham 6            Tottenham 0

Hornspyrnur

Fulham 11          Tottenham 1

Eins og sést á þessari tölfræði,  þá áttu Fulham menn miklu fleiri færi og sóttu ansi stíft í leiknum.  En svona er víst boltinn og oftar en ekki hefur Tottenham verið í sömu sporum og Fulham í þessum leik gegn lakari liðum deildarinnar.  Miklu betri en tapa svo , eða gera jafntefli.

Svo er þetta leiðinlega landsleikjahlé loksins á enda … og næsti leikur Tottenham er heimaleikur gegn Aston Villa á mánudagskvöld.

.