Adebayor sá um Aston Villa

0
663

Tottenham lék við Aston Villa á White Hart Lane síðastliðið mánudagskvöld og enduðu leikar með sigri Tottenham , 2-0 þar sem Adebayor skoraði bæði mörk Tottenham í leiknum.  Um öruggan sigur var að ræða og hefðu leikmenn Tottenham átt að skora fleiri í leiknum.

Leikmenn Tottenham áttu fínt kvöld síðastliðið mánudagskvöld og unnu sannfærandi sigur á liði Aston Villa.  Leikurinn var ekki nema um 14 mínútna gamall þegar Adebayor skoraði fyrsta markið.  Boltinn barst þá út fyrir teiginn eftir fast hornspyrnu og þar kom Bale og átti mjög slakt skot að marki, boltinn vel skoppandi , en Adebayor var vel vakandi á markteig og skoraði með góðri bakfallsspyrnu , 1-0. 

Tottenham hélt áfram að sækja og fengu tækifæri til að skora fleiri mörk en allt kom fyrir ekki , þangað til á 40. mínútu þegar Adebayor skoraði aftur , og aftur var það Bale sem lagði markið upp.  Bale átti þá frábæra sendingu frá vinstri sem varnarmenn Aston Villa voru í vandræðum með , einn varnarmaður rétt náði að pota tánni í boltann sem setti Given markvörð Aston Villa í vandræði og boltinn barst til Adebayor sem átti ekki í vandræðum með að skora í autt markið af ca. 1. m færi !

Staðan í hálfleik var 2-0.

Tottenham hélt áfram að sækja í síðari hálfleik og hefði Adebayor átt að klára þrennuna sína þá en hann fékk alla vega þrjú eðaltækifæri til þess , t.d. einu sinni einn gegn markmanni.

Aston Villa ógnuðu liði Tottenham lítið og komust lítt áleiðis gegn firnasterku liði Tottenham.

harry_back.jpg2-0 sigur staðreynd og tóm hamingja í norður London með gengi liðsins.

Þess má til gamans geta að Harry Redknapp kom aftur á hliðarlínuna eftir veikindi í þessum leik,  hafði misst af tveimur síðustu leikjum liðsins eftir smávægilega hjartaþræðingu.

Lið Tottenham í leiknum.

Friedel – Walker – King – Kaboul – Ekotto – Lennon – Modric(Sando 90) – Parker – Bale – VdV (Defoe 69)- Adebayor

Ónotaðir varamenn :  Cudicini , Gallas , Bassong , Pienaar , Giovani

.

.