6. sigurleikur Tottenham í röð

0
611

Tottenham vann sinn sjötta sigurleik í röð í Ensku Úrvalsdeildinni á laugardaginn var þegar Bolton kom í heimsókn á WHL.  Lokatölur 3-0 þar sem Bolton missti Gary Cahill útaf með rautt spjald eftir einungis 18 mínútur.  Mörk Tottenham í leiknum skoruðu Bale , Lennon og Defoe.  Með þessum sigri fór lið Tottenham í annað sætið í deildinni í nokkrar klukkustundir …

Tottenham byrjaði leikinn af krafti og eftir 7 mínútna leik var staðan orðin 1-0 þegar Bale skoraði eftir hornspyrnu Modric , kom askvaðandi á nærstöngina og kom boltanum yfir línuna.  tottenham_-_bolton___red_card.pngUm 10 mínútum síðar fékk Gary Cahill varnarmaður Bolton rautt spjald eftir brot á Parker við miðlínu vallarins ,  vægast sagt strangur dómur en lítið hægt að segja við því.  Tottenham héldu áfram að sækja og fengu ágætis færi en markvörður Bolton var í góðu stuði.  Bolton menn fengu líka sín færi og héldu áfram að ógna marki Tottenham þrátt fyrir að vera 10 gegn 11 á vellinum.

Það var svo ekki fyrr en á 50. mínútu að Tottenham komst í 2-0 þegar Lennon fékk boltann í teignum og lék til hliðar og átti afbragðsgott skot á nærstöngina sem markvörður Bolton réði ekki við.  Aðeins 10 mínútum siðar skoraði Tottenham aftur og var þar að verki Defoe eftir að Bale hafi skallað hornspyrnu til hans.

tottenham_-_bolton___lennon.pngTottenham voru mikið mun sterkari og hefðu átt að skora fleiri í þessum leik en nýtingin á færunum var ekki nægilega góð.   3-0 sigur og liðið er áfram á sigurbraut í deildinni.   6. sigurleikurinn í röð sem er félagsmet í úrvalsdeildinni hjá Tottenham.

Lið Tottenham í leiknum :

Friedel – Ekotto – Kaboul – Gallas – Walker – Bale – Parker ( Livermore 85 ) – Modric – Lennon ( VdV 73 ) – Defoe – Adebayor
Ónotaðir varamenn : Cudicini – Bassong – Corluka – Pienaar – Pavlyuchenko

Tölfræði :

Með boltann

Tottenham  68 %        Bolton 32 %

Skot á mark

Tottenham 16    Bolton  9

Skot framhjá

Tottenham 9    Bolton 4

Hornspyrnur

Tottenham 7    Bolton  6

.

.