Það kom þá að því að sigurleikjahrinu Tottenham lyki. Fyrsti tapleikur liðsins í deildinni staðreynd síðan í annari umferð. Liðið heimsótti Stoke City á Brittania Stadium á sunnudaginn var og enduðu leikar með sigri heimaliðsins 2-1. Mark Tottenham í leiknum skoraði Adebayor úr vítaspyrnu sem Modric fiskaði. Ekki hægt að segja að úrslitin á sunnudaginn hafi verið sanngjörn, en dómari leiksins var í aðalhlutverki í síðari hálfleik.
Leikurinn byrjaði fjörlega og eftir einungis 40 sekúndur eða svo þurfti Friedel að taka á stóra sínum og varði gott skot í horn. Tottenham liðið var ekki alveg með í byrjun og áttu í miklum erfiðleikum með löng innköst Stoke City sem og háum boltum fram völlinn. Crouch var mjög sterkur í loftinu og vann svo til alla skallabolta í fyrri hálfleiknum. Stoke komst yfir í leiknum á 13. mínútu þegar boltinn kom fyrir markið frá hægri, með viðkomu í varnarmanni. Leikmaður Stoke náði að skalla boltann áfram sem barst á Crouch sem tók við boltanum ( með hendi ) og náði síðan með tregðu að koma boltanum fyrir markið úr mjög þröngu færi við stöngina , náði að klobba Friedel í markinu og einn og óvaldaður á markteig var fyrrum leikmaður Tottenham , Matthew Etherington og skoraði af öryggi í markið. Stoke hélt áfram að ógna og leit Tottenhamliðið vægast sagt illa út í fyrri hálfleik. Modric átti þó ágætis skot fyrir utan en það var lítið að gerast fram á við hjá liðinu og varnarleikurinn ekki sá traustasti. Það var svo undir lok fyrri hálfleiks að Stoke skoraði aftur og komst í 2-0. Langt innkast frá hægri var skallað áfram í teignum og á fjærstöng mætti Etherington á nýjan leik og skoraði – allt of einfalt mark og mjög slakur varnarleikur hjá liði Tottenham.
Flautað var til hálfleiks og staðan 2-0 og lið Tottenham var á hælunum í þessum hálfleik.
Tottenham byrjaði síðari hálfleikinn af miklum krafti og var allt annað að sjá til liðsins. Spilið gekk vel og boltinn gekk vel á milli manna og Tottenham var að skapa sér færi. Á 62. mínútu fékk Tottenham vítaspyrnu þegar Modric var felldur í teignum og á punktinn steig Adebayor og skoraði af miklu öryggi. Á næstu mínútum leit lengi vel út fyrir að Tottenham myndi jafna leikinn enda bara eitt lið á vellinum eftir að Tottenham skoraði.
En dómari leiksins ásamt aðstoðardómara fóru alveg með þær vonir með arfaslakri dómgæslu. Tottenham átti að fá víti þegar Kaboul var togaður niður í teignum að hálfa hefði verið nóg , Tottenham hefði einnig getað fengið víti þegar Gallas var togaður niður þegar boltinn var að koma fyrir markið á hann. En það alversta var þegar leikmaður Stoke varði á línu með olnboganum að hver maður á vellinum sá þetta svo greinilega nema Chris Foy dómari og hans aðstoðarmenn. Einnig skoraði Adebayor gott mark sem var dæmt af vegna rangstöðu sem var kolrangur dómur eins og sést á myndinni hér að neðan.
Í lokin fékk svo Kaboul sitt annað gula spjald fyrir lítið brot en hann hafði einmitt fengið fyrra spjaldið fyrir að kvarta yfir öllum þessum vítaspyrnum sem dómarinn var að sleppa !!!
En allt kom fyrir ekki , Tottenham sótti og sótti án afláts og þegar dómarinn var ekki úti á túni með skrítnar ákvarðanir var Sörensen í marki Stoke að verja vel. Flautað var til leiksloka og fyrsta tap Tottenham síðan í annari umferð staðreynd en alls ekki sanngjarnt.
Lið Tottenham í leiknum
Friedel – Walker – Kaboul – Gallas – Ekotto ( Bassong 45 ) – Lennon ( Defoe 45 ) – Modric – Parker – Bale – VdV ( Giovani 88 ) – Adebayor´
Ónotaðir varamenn : Gomes – Corluka – Sandro – Pienaar
Tölfræði úr leiknum :
Með boltann
Stoke 46 % Tottenham 54 %
Skot á mark
Stoke 7 Tottenham 12
Skot framhjá
Stoke 3 Tottenham 3
Hornspyrnur
Stoke 7 Tottenham 12
.
.
BÓ






