Tottenham tapaði gegn liði Manchester City á sunnudaginn var í ótrúlega skemmtilegum leik. Lokatölur voru 3-2 fyrir heimamenn. Tottenham átti skilið 1 stig , ef ekki 3 úr þessum leik þar sem liðið var að spila nokkuð vel gegn stjörnupríddu liði Man. City. Mörk Tottenham skoruðu Defoe og Bale.
Jæja , þá hefur maður loksins tíma til að smella inn hérna smá umfjöllun um þennan svakalega leik sem fór fram fyrir ca. 10 dögum eða svo. Tottenham fór í heimsókn til Manchester fullir sjálftrausts og ætluðu sér að standa í stjörnupríddu liði Manchester City. Fyrri hálfleikur var ekki mikið fyrir augað og ekki íkja mörg færi sem litu dagsins ljós en Man City var samt betra liðið í fyrri hálfleik.
Svo í síðari hálfleik fór allt að gerast …. Á 56. mínútu byrjaði ballið þegar Nasri skoraði fyrsta mark leiksins þegar Silva átti frábæra sendingu í gegnum vörn Tottenham og Nasri kláraði mjög vel. Aðeins þremur mínútum síðar skoraði Lescott annað mark fyrir Manchester City eftir að boltinn barst til hans á fjærstöng eftir hornspyrnu , 2-0. Margir líklega haldið að þarna væri vonin úti , en leikmenn Tottenham voru á öðru máli. Aðeins mínútu eftir að Manchester City komst í 2-0 komst Defoe einn í gegn um vörn Man City, lék á Hart í markinu og renndi boltanum í autt markið. 2-1 og leikurinn galopinn. Og svo jafnaði Tottenham metin fimm mínútum síðar þegar Bale skoraði frábært mark með góðu vinstri fótarskoti fyrir utan teig, óverjandi fyrir Hart í markinu. Eftir jöfnunarmark Tottenham var liðið síst lakara í leiknum og var góður fótbolti spilaður.
Mjög umdeilt atvik átti sér stað á 82. mínútu þegar Balotelli traðkaði á Parker þar sem hann lá á vellinum, hægt að sjá þetta HÉR. Klárlega ásetningur og rautt spjald, en Balotelli slapp með skrekkinn ( var síðar ákærður og dæmdur í 4ja leikja bann ).
Þetta atvik átti eftir að kosta sitt.
Minnstu munaði að Tottenham kæmist í 2-3 á 92. mínútu þegar Bale brunaði inní teig Manchester manna, renndi boltanum fyrir markið og þar koma Defoe askvaðandi en var líklega ca. 5cm frá því að skora á fjærstönginni og náði aðeins að ýta boltanum vitlausu megin við stöngina áður en hann sjálfur lenti í árekstri við stöngina.
Tveimur mínútum síðar gerði King sig sekan um mistök þegar hann missti Balotelli innfyrir sig og braut frekar klaufarlega á honum inní vítateig, vítaspyrna óumflýjanleg. Balotelli steig á punktinn og skoraði 3-2. Með réttu hefði Balotelli aldrei átt að vera á vellinum til að geta fengið þetta víti, alger skandall. Flautað var til leiksloka og leikmenn Tottenham í miklum sárum enda áttu þeir mjög góðan leik og áttu klárlega eitthvað skilið út úr honum.
Enn á ný eru vafasamir dómar að koma Tottenham illa.
Lið Tottenham
Friedel – Walker – King – Kaboul – Ekotto – Lennon (Pienaar 88)- Parker – Modric – Bale – VdV ( Livermore 67 ) – Defoe
Ónotaðir varamenn :
Cudicini – Bassong – Dawson – Kranjcar – Pavlyuchenko
Tölfræði úr leiknum :
Með boltann
Man City 55% Tottenham 45%
Skot á mark
Man City 7 Tottenham 7
Skot framhjá
Man City 6 Tottenham 5
Hornspyrnur
Man City 9 Tottenham 4
.
.
BÓ






