Grátlegt tap gegn Man. City

0
695

Tottenham tapaði gegn liði Manchester City á sunnudaginn var í ótrúlega skemmtilegum leik.  Lokatölur voru 3-2 fyrir heimamenn.  Tottenham átti skilið 1 stig , ef ekki 3 úr þessum leik þar sem liðið var að spila nokkuð vel gegn stjörnupríddu liði Man. City.  Mörk Tottenham skoruðu Defoe og Bale.

Jæja , þá hefur maður loksins tíma til að smella inn hérna smá umfjöllun um þennan svakalega leik sem fór fram fyrir ca. 10 dögum eða svo.  Tottenham fór í heimsókn til Manchester fullir sjálftrausts og ætluðu sér að standa í stjörnupríddu liði Manchester City.  Fyrri hálfleikur var ekki mikið fyrir augað og ekki íkja mörg færi sem litu dagsins ljós en Man City var samt betra liðið í fyrri hálfleik.

Svo í síðari hálfleik fór allt að gerast  ….    Á 56. mínútu byrjaði ballið þegar Nasri skoraði fyrsta mark leiksins þegar Silva átti frábæra sendingu í gegnum vörn Tottenham og Nasri kláraði mjög vel.  Aðeins þremur mínútum síðar skoraði Lescott annað mark fyrir Manchester City eftir að boltinn barst til hans á fjærstöng eftir hornspyrnu , 2-0.  Margir líklega haldið að þarna væri vonin úti , en leikmenn Tottenham voru á öðru máli.  Aðeins mínútu eftir að Manchester City komst í 2-0 komst Defoe einn í gegn um vörn Man City,  lék á Hart í markinu og renndi boltanum í autt markið.  2-1 og leikurinn galopinn.  Og svo jafnaði Tottenham metin fimm mínútum síðar þegar Bale skoraði frábært mark með góðu vinstri fótarskoti fyrir utan teig, óverjandi fyrir Hart í markinu.  Eftir jöfnunarmark Tottenham var liðið síst lakara í leiknum og var góður fótbolti spilaður.

Mjög umdeilt atvik átti sér stað á 82. mínútu þegar Balotelli traðkaði á Parker þar sem hann lá á vellinum, hægt að sjá þetta HÉR.  Klárlega ásetningur og rautt spjald,  en Balotelli slapp með skrekkinn ( var síðar ákærður og dæmdur í 4ja leikja bann ).

Þetta atvik átti eftir að kosta sitt.  

defoe_miss_man_city.jpgMinnstu munaði að Tottenham kæmist í 2-3 á 92. mínútu þegar Bale brunaði inní teig Manchester manna, renndi boltanum fyrir markið og þar koma Defoe askvaðandi en var líklega ca. 5cm frá því að skora á fjærstönginni og náði aðeins að ýta boltanum vitlausu megin við stöngina áður en hann sjálfur lenti í árekstri við stöngina.

king_penalty_man_city.jpgTveimur mínútum síðar gerði King sig sekan um mistök þegar hann missti Balotelli innfyrir sig og braut frekar klaufarlega á honum inní vítateig,  vítaspyrna óumflýjanleg.   Balotelli steig á punktinn og skoraði 3-2.  Með réttu hefði Balotelli aldrei átt að vera á vellinum til að geta fengið þetta víti, alger skandall.  Flautað var til leiksloka og leikmenn Tottenham í miklum sárum enda áttu þeir mjög góðan leik og áttu klárlega eitthvað skilið út úr honum.

Enn á ný eru vafasamir dómar að koma Tottenham illa.

Lið Tottenham

Friedel – Walker – King – Kaboul – Ekotto – Lennon (Pienaar 88)- Parker – Modric – Bale – VdV ( Livermore 67 ) – Defoe

Ónotaðir varamenn :

Cudicini – Bassong – Dawson – Kranjcar – Pavlyuchenko

Tölfræði úr leiknum :

Með boltann

Man City 55%    Tottenham 45%

Skot á mark

Man City 7     Tottenham 7

Skot framhjá

Man City 6    Tottenham 5

Hornspyrnur

Man City 9    Tottenham 4

.

.