** UPPFÆRT – VEGNA STÖÐUNNAR Á COVID-19 HEFUR FUNDI VERIÐ FRESTAÐ UM ÓÁKVEÐINN TÍMA **
Aðalfundur Tottenhamklúbbsins á Íslandi verður haldinn föstudaginn 25.september 2020 á Ölver í glæsibæ kl. 20.00
Hvetjum við alla Spursara til að mæta á fundinn.
Dagskrá fundar:
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar síðasta árs
3. Kosning stjórnar
4. Önnur mál
Vonandi sjá sem flestir félagsmenn sér fært að mæta og gaman væri að sjá ný andlit á staðnum. Ef einhver hefur áhuga á að bjóða sig fram í stjórn Tottenhamklúbbsins má hinn sami hafa láta vita á e-mailið spurs@spurs.is. Nýir aðilar sem vilja leggja eitthvað á vogarskálarnar við rekstur klúbbsins eru mjög velkomnir á fundinn – margar hendur vinna létt verk.
Stjórnin