Minnum á aðalfundinn í kvöld!!!
Aðalfundur Tottenham klúbbsins á Íslandi verður haldinn fimmtudagskvöldið 26.maí næstkomandi á Ölveri í Glæsibæ. Fundurinn hefst kl. 20 og er dagskrá fundarins eftirfarandi:
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar síðasta árs
3. Kosning stjórnar
4. Önnur mál
Tveir núverandi stjórnarmeðlimir munu láta af embætti í lok tímabilsins og eru þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram í stjórn klúbbsins vinsamlegast beðnir um að hafa samband við stjórnina á spurs(hja)spurs.is eða við formanninn í síma: 693-3345.
Léttar veitingar verða í boði.






