Það var sannkölluð markaveisla á White Hart Lane þegar Tottenham tók á móti Aston Villa mánudagskvöldið 1.október en þá var einnig verið að fagna 125 ára afmæli félagsins og kvöldið því ansi sérstakt. Átta mörk litu dagsins ljós í leiknum og skiptust jafnt á milli liða 4-4. Mörk Tottenham skoruðu þeir Berbatov, Chimbonda, Keane (V) og Kaboul.
Kvöldið var ansi sérstakt vegna afmælis Tottenham og stemningin gífurleg. Talsvert margir fyrrum spursarar voru á vellinum og tóku margir þeirra göngu um völlinn fyrir leikinn. Einnig var minnst hins frábæra Spursara Bill Nicholsson með mínútu lófaklappi, en hann er án efa stór og mikilvægur hlekkur í sögu félagsins. En Martin Jol gerði nokkrar breytingar á liði sínu. Robinson var þó sem fyrr í markinu, Chimbonda, Dawson, Kaboul og Bale skipuðu varnarlínuna. Jenas átti við meiðsli að stríða og gat því ekki tekið þátt í leiknum. Því var miðjan skipuð þeim Lennon, Zokora, Huddlestone og Tainio. Frammi voru svo þeir Berbatov og Keane.
Tainio átti fyrsta færi leiksins og á eftir fylgdi hættulegt færi frá Huddlestone en Carson sá við því. Robinson fékk líka eitthvað að gera og mátti hafa sig allan við að verja gott skot frá Young. En á 19.mínútu var markareikningurinn loksins opnaður og kom það í hlut Tottenham að skora fyrsta markið. Huddlestone tók hornspyrnu sem flaug yfir hausinn á Dawson en hitti beint á kollinn á Berbatov sem skallaði hann snyrtilega í markið framhjá Carson. Staðan orðin 1-0 fyrir Tottenham. En gleðin ríkti ekki lengi. Einungis tveimur mínútum síðar fengu Villa menn hornspyrnu sem Barry tók. Hann gaf fyrir og Robinson stökk upp, greip boltann en gerði sig svo sekan um gífurleg mistök þegar hann náði ekki að halda boltanum heldur missti hann fyrir fæturnar á Laursen sem skoraði. Staðan orðin jöfn á ný, 1-1. Tíu mínútum síðar fór svo allt á versta veg. Barry gaf fyrir og eftir að boltinn hafði borist á milli manna inni í teignum endaði boltinn á að skjótast í Laursen og beint í gegnum klofið á Robbo sem horfði bara á eftir boltanum fara í sitt eigið net. Staðan orðin 2-1 fyrir Villa. Lánleysi Tottenham var gífurlegt og á 39.mínútu fékk Agbonlahor boltann, lék á Dawson og skaut löngu skoti framhjá Robinson í markinu og staðan því orðin 3-1. Og þannig var staðan í hálfleik.
Seinni hálfleikur byrjaði á svipaða hátt og þeim fyrri lauk. Villa menn spiluðu af krafti enda sjálfstraustið í skýjunum hjá þeim en á móti gekk ekkert upp hjá Tottenham og sjálfstraustið í molum þeim megin. Einföldustu sendingar fóru út um þúfur og ekkert gekk. Villa átti gott færi sem Robinson varði og vildu Villamenn meina að hann hefði brotið á einum þeirra leikmanni og vildu fá víti. Endursýningar sýndu að hægt hefði verið að dæma víti á þetta en sem betur fer fyrir okkar menn var það ekki gert. Strax á 53. mínútu gerði Martin Jol sína fyrstu breytingu sem telst nú frekar snemma miðað við venjulega. Þá kom Defoe inná í stað Tainio. En einungis fimm mínútum síðar versnuðu hlutirnir til muna. Kaboul braut á Villa manni fyrir utan teig og fengu þeir aukaspyrnu. Robbo stillti upp varnarveggnum og fór svo í sitt horn en þegar Gardner skaut virtist Robbo ekki treysta veggnum þar sem hann steig fyrst í áttina að því horninu en skotið fór í hornið hans og hann náði ekki boltanum og boltinn fór inn. Staðan orðin 4-1 fyrir Villa og afmæliskvöldið aldeilis ekki ánægjulegt. En leikmenn Tottenham fóru aðeins að bæta sinn leik og Defoe átti gott skot að marki sem Carson varði vel. En stuttu síðar fékk Defoe annað færi eftir fyrirgjöf frá Bale en skotið endaði í stönginni og boltinn barst út í teiginn og þar beið enginn annar en Chimbonda sem skoraði örugglega. Staðan orðin 4-2 en einungis tuttugu mínútur til leiksloka. Þá var komið að næstu skiptingu en Berbatov fór þá útaf og inná kom Bent. Og það tók hann ekki langan tíma að koma sér í færi en Laursen bjargaði á línunni. Bent kom þó við sögu í næsta marki þegar Harewood felldi hann innan teigs og dómarinn var ekki í vafa og dæmdi vítaspyrnu á Villa. Keane steig á vítapunktinn og skoraði. Staðan orðin 4-3 fyrir Villa og tíu mínútur til leiksloka. Allt í einu var fjör komið í leikinn og leikmenn Tottenham börðust virkilega vel til að reyna að bjarga kvöldinu sérstaka. Defoe náði að koma boltanum yfir línuna en var réttilega dæmdur rangstæður. Síðasta skipting kvöldsins hjá Jol var þegar hann tók Lennon útaf og setti Malbranque inná. Og nú var allt lagt í sölurnar við að reyna að jafna leikinn og fór Robinson t.d. fram í sóknina þegar Tottenham fékk hornspyrnur. En það var svo einmitt eftir eina slíka í uppbótartíma sem boltinn barst inn í teig, skoppaði á milli manna á kollum þeirra og á endanum barst boltinn í fætur Kaboul sem hamraði hann í netið. Gífurleg fagnaðarlæti brutust út enda Tottenham búið að jafna leikinn á lokamínútunum eftir að hafa verið þremur mörkum undir. Leiknum lauk með 4-4 jafntefli.
Lið Tottenham: Robinson, Chimbonda, Dawson, Kaboul, Bale, Lennon (Malbranque 86), Zokora, Huddlestone, Tainio (Defoe 53), Keane, Berbatov (Bent 73). Ónotaðir varamenn: Cerny, Rocha.






