Nokkrir varnarmenn Tottenham eiga við meiðsli að stríða fyrir leik helgarinnar gegn Aston Villa á White Hart Lane. Paul Stalteri er í leikbanni og Ledley King og Michael Dawson eru báðir að berjast við smámeiðsli.
King hefur ekki náð sér að fullu eftir meiðslin sem hann hlaut gegn Birmingham en hann lék sinn fyrsta leik eftir meiðslin um síðustu helgi. En telja verður líklegt að þeir verði báðir með en annars er Anthony Gardner í biðstöðu.
Vegna banns Stalteris kemur Stephen Kelly inn í hægri bakvörðinn en hann hefur undanfarið verið óánægður með stöðu sína hjá félaginu.
Robbie Keane er annars mjög bjartsýnn fyrir leikinn en hann skoraði einmitt jöfnunarmark Spurs í fyrri leik liðanna á þessu tímabili.
„Liðsandinn er mjög góður í augnablikinu og það er mikið fjör hjá okkur, en við verðum að láta það sýna sig með frammistöðu okkar í leiknum,” sagði Robbie Keane,
Hópur Spurs: Cerny, Robinson, Lee, Tainio, Gardner, King, Dawson, Carrick, Jenas, Davids, Brown, Kelly, Defoe, Keane, Rasiak, Lennon, Routledge og Reid.






