Tottenham tapað öðrum leik sínum á tímabilinu og fyrsta heimaleiknum þegar liðið fékk Sunderland í heimsókn. Malbranque mætti þar á White Hart Lane í fyrsta skiptið eftir að hafa verið seldur til Sunderland í sumar en Tainio og Chimbonda voru fjarri góðu gamni. Leiknum lauk með 2-1 sigri Sunderland en mark Tottenham skoraði Jermaine Jenas.
Ramos stillti upp töluvert sterku liði í þennan leik. Gomes var milli stanganna sem fyrr og vörnin var skipuð þeim Zokora, Woodgate, King og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Lennon, Jenas, Modric og Bale, Bentley var svo rétt fyrir framan miðjuna og Bent einn frammi. Á bekknum sátu þeir Sanchez, Gunter, Gilberto, Dawson, Huddlestone, O´Hara og Giovani. Athygli vakti að Berbatov var ekki í hópnum en sú skýring var gefin að hann væri ekki í nógu góðu andlegu ástandi til að geta spilað leikinn.
Leikurinn hófst ágætlega fyrir leikmenn Spurs og voru kantarnir vel mannaðir og leikmenn sóttu á mark Sunderland manna. Eftir rúmlega stundarfjórðungs leik munaði litlu að Lennon næði að gefa góðan bolta á Bent en varnarmenn Sunderland komust í veg fyrir sendinguna. Á svipuðum tíma átti Spurs einnig hættulega hornspyrnu sem Bentley tók en boltinn flaug rétt framhjá bæði Bale og Woodgate inni í teignum. Leikmenn Sunderland sóttu svo í sig veðrið og munaði litlu að Malbranque næði að skora gegn sínum fyrri félögum. Hann skaut föstu skoti að marki á 38.mínútu en boltinn hafnaði í stönginni. Lítið annað markvert gerðist í fyrri hálfleik og staðan var því 0-0 í hálfleik.
Fyrsta færi síðari hálfleiks var sannkallað dauðafæri en þá skallaði Bale rétt yfir stöngina eftir hornspyrnu frá Bentley. En þá brettu Sunderland menn upp ermarnar og uppskáru mark að lokum. Fyrst átti Murphy skalla yfir þverslánna eftir aukaspyrnu frá Andy Reid, einnig fyrrum Spursara, en hann fékk svo sjálfur tækifæri til að skora en Gomes varði það vel. Á 54.mínútu kom fyrsta markið en það var Richardson sem skoraði markið með þrumuskoti utan úr teignum eftir að leikmenn Tottenham náðu ekki að hreinsa boltann út úr teignum. Við þetta mark ákvað Ramos að gera breytingar á liðinu enda Sunderland menn líklegri til að bæta við heldur en Spurs að jafna leikinn. Huddlestone og Giovani komu inná og útaf fóru þeir Ekotto og Lennon. Skiptingarnar höfðu nokkur áhrif á leikinn enda fylgdu nokkur færi heimamanna. Gordon varði vel aukaspyrnu sem Bentley tók og litlu munaði að Bale og Woodgate næðu frákastinu en það varð þó ekki. Stuttu seinna þegar rúmlega klukkustund var liðin af leiknum átti Jenas skalla yfir markið eftir sendingu frá Huddlestone og Bent átti skot í hliðarnetið. Bentley átti svo magnað skot á markið sem Gordon náði að vippa yfir markið með fingurgómunum. Á endanum tókst svo leikmönnum Tottenham að koma boltanum framhjá Gordon í markinu. Modric barði sér leið í teignum framhjá nokkrum leikmönnum og skaut að markinu en Gordon varði skotið, boltinn barst þó til Jenas sem potaði honum í netið. Staðan orðin jöfn 1-1 og leikurinn galopinn þar sem allt gat gerst. Leikmenn Tottenham héldu áfram að sækja og sýndu hungur í að hirða öll stigin. Bentley var enn og aftur á ferð með gott skot á markið sem Gordon varði. En þrátt fyrir góðan sóknarleik þá var það hins vegar Sunderland sem náði að skora þegar átta mínútur voru til leiksloka og var það jafnframt sigurmark leiksins. Murphy gaf fyrir markið frá vinstri kantinum og var það enginn annar en fyrrum leikmaður Liverpool, Cisse sem skallaði boltann í netið. Leiknum lauk því með 2-1 sigri Sunderland.
Lið Spurs: Gomes, Zokora, Woodgate, King, Assou-Ekotto (Huddlestone, 55), Jenas, Modric, Lennon (Giovani, 55), Bentley, Bale, Bent
Ónotaðir varamenn: Cesar, Gunter, Dawson, Gilberto, O’Hara






