Darren Bent hefur skrifað undir samning við Spurs sem getur orðið allt að 6 ára samningur. Hann gengur til liðs við okkur frá Charlton og verður hann dýrasti leikmaður félagsins en talið er að Spurs borgi allt að 16,5 milljónir punda fyrir hann en þó mun hluti þess vera árangurstengdur.
Darren Bent er 23 ára enskur leikmaður sem hóf feril sinn hjá Ipswitch en gekk til liðs við Charlton sumarið 2005. Hann lék 77 leiki fyrir Charlton og skoraði í þeim 37 mörk. Hann hefur einnig verið að brjótast inn í aðallandslið Englendinga en þar hefur hann spilað 2 landsleiki en hann spilaði einnig með U-19 og U-21 árs landsliðum Englendinga.
Damien Commoll og Martin Jol voru mjög ánægðir með að hafa landað Bent enda búið að taka sinn tíma. Þeir hrósuðu ákveðni hans og vilja í að verða leikmaður Tottenham og telja hann góða viðbót við framherjahóp félagsins. Auk þess að hafa sannað það að hann geti skorað mörk telja þeir styrk hans vera úthaldið þar sem hann geti verið mikið á hreyfingu og stungið sér inn fyrir varnir andstæðinganna.
Darren Bent var himinlifandi með kaupin enda var vilji hans að ganga til liðs við Tottenham og hafnaði hann m.a. mun hærri launum hjá West Ham til þess að ganga til liðs við Spurs. Hann segist ánægður með að í liðinu sé mikið um unga og efnilega leikmenn og mun hann spila með mörgum félögum sínum úr landsliðinu. Hann er viss um að Tottenham sé á uppleið og vill vera hluti af því. Hann er staðráðinn í að sýna hvað í sér býr og vinna titla með Tottenham.
Við bjóðum Darren Bent velkominn til Tottenham.






