Bikarsigur gegn Charlton

0
756

Tottenham tók á móti Charlton í fyrsta leik sínum í FA bikarkeppninni þetta leiktímabilið. Harry kaus að hvíla nokkra lykilmenn og gefa örðum leikmönnum sem lítið hafa spilað tækifæri til að sýna hvað í þeim býr. Andros Townsend var í fyrsta sinn í byrjunarliði Tottenham og hann lét svo sannarlega vita af sér þar sem hann skoraði fyrsta mark leiksins. Hvorugt liðið náði að skora í fyrri hálfleik en Townsend braut ísinn á 4. mínútu síðari hálfleiks með löngu skoti. Stuttu síðar bætti Defoe við öðru markinu þar sem hann lék á varnarmann Charlton og kom boltanum í netið framhjá markverði Charlton. Defoe bætti svo við öðru marki sínu og þriðja marki Tottenham áður en langt um leið, en markvörður Charlton varði fyrst skot hans en Defoe náði frákastinu og skoraði af öryggi. Lokatölur leiksins urðu því 3-0 Tottenham í vil og liðið komið áfram í bikarnum.

Lið Spurs: Cudicini, Corluka, Dawson, Bassong, Ekotto, Townsend, Palacios (Modric 46), Sandro, Kranjcar, Defoe, Pavlyuchenko. Ónotaðir varamenn: Pletikosa, Hutton, Jenas, Lennon, Van der Vaart.