Birmingham 1 – Spurs 1

0
754

Tottenham heimsótti Birmingham á St. Andrews leikvanginn í leik helgarinnar. Eiður Smári, sem gekk frá lánssamningi við liðið í sl. viku, var ekki í leikmannahópi liðsins í þetta skiptið enda einungis búinn að mæta á eina æfingu hjá liðinu. Birmingham menn hafa komið nokkuð á óvart á þessu tímabili með góðri frammistöðu og eru eins og er rétt á eftir þeim hópi liða sem berjast hvað harðast um 4. sætið. Tottenham sat enn í 4.sætinu fyrir umferðina en baráttan er hörð og því ekkert rúm fyrir mistök. Lengi vel stefndi í Tottenham sigur í þessum leik, en á fyrstu mínútu uppbótartíma náðu Birmingham að jafna leikinn og lauk leiknum því með 1-1 jafntefli. Mark Tottenham skoraði Jermain Defoe.

 

Harry ákvað að stilla upp sama liði og sigraði Fulham í vikunni, en eina breytingin var sú að Kranjcar tók sæti á bekknum eftir að hafa jafnað sig af flensunni og tók hann sæti O´Hara sem hefur verið lánaður aftur til Fulham. Liðinu var því þannig stillt upp að Gomes stóð á milli stanganna og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, Dawson, King og Bale. Á miðjunni léku þeir Bentley, Huddlestone, Palacios og Modric og frammi byrjuðu þeir Crouch og Defoe. Bekkinn vermdu þeir Alnwick, Hutton, Bassong, Jenas, Rose, Kranjcar og Keane.

 

Fyrsta færi leiksins fékk David Bentley þegar hann skaut löngu skoti að marki en Hart átti ekki í vandræðum með að grípa þann bolta. Á hinum enda vallarins fékk Bowyer fínt færi en Gomes varði vel. Modric var nálægt því að koma Tottenham yfir eftir að boltinn barst til hans frá varnarmanni Birmingham sem komist hafði í veg fyrir skot frá Bentley. En skotið hjá Modric fór rétt framhjá markinu. Crouch og Bentley komu sér báðir í góða stöðu til að skjóta á markið en varnarmenn Birmingham stóðu fyrir sínu. Á hinum enda vallarins komst Chuchu í gegnum vörn Tottenham en náði ekki að skjóta nógu öflugu skoti að marki og Gomes átti því ekki í vandræðum með að halda boltanum frá markinu. Defoe fékk svo góða fyrirgjöf frá Corluka en skalli hans í átt að markinu fór vel framhjá. Bentley og Defoe komu sér síðan í fín skotfæri en Hart var öruggur í marki Birmingham manna. Hvorugu liðinu tókst að skora í fyrri hálfleik og því var markalaust í hálfleik, 0-0.

 

Leikmenn Tottenham komu ákveðnari til leiks í seinni hálfleik enda fengu þeir ágætis færi í fyrri hálfleik en náðu ekki að nýta færin. Bentley var fjörugur á hægri kantinum og gaf nokkra góða bolta inn í teiginn og átti gott skot að marki sjálfur sem Hart rétt náði að verja. Defoe og Crouch fengu báðir ágætisfæri en hvorugum tókst að skora. Á 70. mínútu dró svo loks til tíðinda. Bale tók á sprett upp vinstri kantinn og gaf fína sendingu á Crouch inn í teig. Boltinn var lágur en í stað þess að taka skotið ákvað Crouch að kasta sér niður og skalla boltann áfram á Defoe sem var ekki í vandræðum með að þruma boltanum í netið viðstöðulaust. Staðan orðin 0-1 Tottenham í vil.  Chuchu fékk svo upplagt færi til að jafna metin þegar hann komst einn inn fyrir vörn Tottenham. En hann dvaldi of lengi á boltanum og Dawson og King voru því komnir til bjargar. Harry gerði sína fyrstu skiptingu þegar 12 mínútur voru til leiksloka, Keane kom inná fyrir Defoe. Allt vitist stefna í sigur Tottenham en þó reyndu Birmingham menn að sækja eins og þeir mögulega gátu. Á 89.mínútu kom Jenas inná fyrir Bentley. En það var svo á fyrstu mínútu í uppbótartíma sem Birmingham menn náðu að jafna leikinn og verða sér úti um eitt stig í þessari viðureign. Jerome skallaði boltann fyrir markið þar sem Ridgewell potaði boltanum í netið. Staðan 1-1 og þannig urðu lokatölur leiksins.

 

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Dawson, King, Bale, Bentley (Jenas), Huddlestone, Palacios, Modric, Crouch, Defoe(Keane). Ónotaðir varamenn: Alnwick, Hutton, Bassong, Rose, Kranjcar.

 

SAJ