Comolli nýr yfirmaður knattspyrnumála

0
586

Nú hefur verið tilkynnt að eftirmaður Frank Arnesen í stöðu yfirmanns knattspyrnumála hjá Tottenham Hotspurs verði Frakkinn Damien Comolli, en hann er 33ja ára gamall og var áður í svipuðu starfi hjá franska liðinu St. Etienne.

"Ég er mjög spenntur að taka við þessu starfi hjá Tottenham og mun leggja mitt að mörkum til að koma félaginu í fremstu röð í framtíðinni. Ég hlakka mikið til að vinna með Martin og félögum og veit að stjórn félagsins hefur mikinn metnað til að gera vel," sagði Comolli.