Dimitar Berbatov keyptur

0
569

Það er búið að staðfesta að við höfum keypt Búlgarska framherjan Dimitar Berbatov frá Bayer Leverkusen á ca. 10,9 milljónir punda. Þetta er gríðarlega góðar fréttir. Berbatov er 25 ára og hefur verið hjá Leverkusen í fimm ár. Á síðustu þrem tímabilum hefur hann skorað 57 mörk í 100 leikjum í Þýsku deildinni þ.a. 21 mark í 34 leikjum í vetur sem gerði hann að öðrum markahæðsta manni deildarinnar. Þá hefir hann skorað 31 mark í 50 A landsleikjum með Búlgaríu . Það er ljóst að við erum að fá gríðarlega öflugan framherja með mikla reynslu bæði í deild og í Evrópuleikjum. Ekki er ljóst hvaða áhrif þetta hefur á mál Mido en það hefur verið talað um það í blöðum að hann sé þegar farinn til Róma aftur eftir að Tottenham sagðist ekki hafa áhuga á að kaupa hann á því verði sem Róma setti upp. Sumir tala um að þetta sé trix til að lækka verðið en aðrir að áhuginn sé bara ekki til staðar lengur. Eins er ekki vitað hvort fleiri framherjar verði keyptir og er þá helst spurt hvort kaupin á Berbaov þýði að hætt hafi verið við kaup á Hollendingnum Kuyt hafi þau þá einhvern tíma verið í skoðun.