Tottenham féll út í 4.umferð FA bikarsins þegar þeir heimsóttu Manchester United á Old Trafford. Leiknum lauk með 3-1 sigri Man.Utd í skemmtilegum og spennandi leik en mark Tottenham skoraði Robbie Keane.
Ramos gerði töluverðar breytingar á liðinu frá síðasta leik, þá einna helst á vörninni. Cerny byrjaði þó sem fyrr í markinu en sökum leikbanns hjá Chimbonda þá spilaði Lee í hægri bakverðinum en O´Hara í þeim vinstri. Dawson og Huddlestone mynduðu svo miðvarðarparið. Á miðjunni spiluðu þeir Lennon, Jenas, Tainio og Malbranque og frammi sem fyrr Berbatov og Keane. Á bekknum sátu þeir Robinson, Gunter, Boateng, Defoe og Kaboul.
Leikurinn var spennandi strax frá fyrstu mínútu og greinilegt var að hvorugt liðið ætlaði sér að falla út án baráttu. Fyrsta hættulega færi leiksins kom frá United þegar Giggs gaf sendingu á Rooney sem skaut að markinu en boltinn small í hliðarnetinu. Ronaldo átti svo skot að marki þegar stundarfjórðungur var liðinn af leiknum en stuttu síðar átti Tottenham dauðafæri. Lennon tók hornspyrnu og gaf beint á hausinn á Berbatov sem skallaði að fjærstönginni en því miður stóð Rooney á línunni og náði að skalla boltann aftur fyrir endamörk. En fyrsta mark leiksins kom þegar 24 mínútur voru liðnar af leiknum og komust gestirnir yfir. Dawson gaf frábæra sendingu fram völlinn á Lennon sem gaf svo sendingu fyrir markið og þar var Keane á réttum stað og potaði boltanum í netið framhjá Van der Sar. Staðan orðin 1-0 fyrir Tottenham og gríðarleg fagnaðarlæti brutust út. Lennon átti svo annað færi stuttu síðar en Van der Sar sá við honum þá. Giggs átti svo eftir að vera í eldlínunni stuttu síðar. Fyrst átti hann skot að marki sem fór vel yfir. Í seinna skiptið gerði Dawson gríðarleg varnarmistök þegar hann skallaði boltann inni í teignum upp í loftið í stað þess að skalla frá markinu og Giggs nýtti sér þetta, náði boltanum í baráttu við Lee og gaf á Tevez sem skoraði framhjá Cerny í markinu. Staðan því orðin jöfn 1-1 en stuðningsmenn Spurs hættu ekki að hvetja sína menn þrátt fyrir þetta. Jenas fékk svo færi á að koma okkur yfir rétt undir lok fyrri hálfleiks þegar Malbranque gaf góða sendingu á hann en skot hans endaði framhjá markinu. Staðan í hálfleik var því jöfn 1-1.
Leikmenn Tottenham mættu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og átti Lennon gott skot að marki eftir nokkrar mínútur. Hann lék vel á Evra sem átti í miklu basli með Lennon í leiknum og Lennon skaut hörkuskoti að marki sem fór rétt yfir þverslánna. Stuttu síðar fengu leikmenn Spurs aukaspyrnu og O´Hara þrumaði boltanum framhjá varnarveggnum en boltinn fór sömuleiðis framhjá markinu. Enn á ný fékk svo Jenas gullið tækifæri til að koma Tottenham yfir á ný þegar hann var kominn einn á móti markverði United eftir góða sendingu frá Keane en skot hans fór vel framhjá. Ronaldo átti hættulegt skot fyrir Manchester en skot hans fór í hliðarnetið. Þá var komið að fyrstu skiptingu Ramos en Lee fór af velli og í stað hans kom Chris Gunter í hægri bakvarðarstöðuna. Á 67.mínútu gerði Dawson enn á ný varnarmistök sem áttu eftir að kosta liðið. Dawson náði ekki að skalla bolta sem kom inn í teiginn til Rooney og féll hann við en í leiðinni fór hönd hans í boltann og dómarinn var ekki í vafa og dæmdi vítaspyrnu. Dawson fékk einnig rauða spjaldið og þurfti því að fara beinustu leið í sturtu. Ronaldo steig á vítapunktinn og skoraði framhjá Cerny sem kastaði sér í öfugt horn. Útlitið var því ekki gott fyrir leikmenn Tottenham, marki undir og einum manni færri. Stuttu síðar ákvað Ramos að setja Boateng inná og tók Lennon útaf. Defoe kom svo inná í stað Tainio þegar 10 mínútur voru til loka leiksins þar sem Ramos reyndi að fjölga í sókninni til að knýja fram jöfnunarmarkið. Minnstu munaði að það tækist eftir að Malbranque gaf sendingu inn í teiginn frá vinstri kantinum á fjærstöngina þar sem Berbatov var staðsettur. Brown náði þó að pota tánni í boltann sem small í stönginni. En sökum þess hversu liðið lá framarlega á vellinum þá var varnarlínan ekki eins traust og á lokamínútum leiksins náði Ronaldo að bæta við þriðja marki United. Tók hann á sprett upp vinstri kantinn og skaut að marki og Cerny var óheppinn að verja ekki þar sem boltinn fór undir hann og inn í markið. Leiknum lauk því með sigri United 3-1 og er Tottenham því dottið út úr FA bikarnum.
Lið Spurs: Cerny, Lee (Gunter), Dawson, Huddlestone, O´Hara, Lennon (Boateng), Jenas, Tainio(Defoe), Malbranque, Berbatov, Keane. Ónotaðir varamenn: Robinson, Kaboul.






