Það berst fréttir víða að, að búið sé að selja Erik Edman til franska liðsins Rennes. Þetta hefur ekki verið staðfest á heimasíðu Tottenham frekar en önnur leikmannamál. Ég hef hinsvegar eftir manni (svía) sem er í smanbandi við Edman (hann er á Spurs-list) að þetta er rétt og Edman finnist mjög leitt að fara frá okkur. Þetta þýðir aðeins eitt og það er að þessi Lee frá Suður-Kóreu er kominn til okkar. Hann er sagður eiga eftir að fá atvinnuleyfi en Edman væri ekki seldur nema Lee sé öruggur.
Nýjustu fréttirnar
Hópferð Tottenhamklúbbsins – Nóvember 2026 (UPPSELT)
Daginn Þá er komið að fyrstu hópferð Tottenhamklúbbsins á Íslandi tímabilið 2026-2027Farið verður á leik Tottenham - Ipswich sem verður á Tottenham Hotspur Stadium,...







