Ég hef trú á þessum manni

0
641

Martin Jol hefur á heimasíðu Tottenham sagt af hverju hann keypti Pólverjann Gregorz Rasiak frá Derby. „Ég sá hann spila tvisvar í fyrra og hann hefur átt góðu gengi að fagna auk þess að vera fastamaður í landsliði Pólands. Sumir segja að Póland sé ekki topplið, en þeir eru í augnablikinu í efsta sæti riðilsins sem England eru í.”

„Úrvalsdeildin er allt annað en 1. deildin en ef þú horfir til leikmanna eins og Dean Ashton og Darren Bent sem hafa tekið stökkið að undanförnu þá sést það að þessi skipti eru ekki ógerleg og ég er sannfærður um að þessi strákur geti gert það sama og þeir.

„Mido verður í banni í 2 vikur þannig að við gátum ekki tekið neina áhættu, við þurftum góðan target mann í sóknina sem getur haldið boltanum fyrir okkur. Þessi félagaskipti hafa kannski komið einhverjum á óvart en ég hef fulla trú á þessum leikmanni,” sagði Martin Jol um Gregorz Rasiak.

DEILA
Fyrri fréttNúmer leikmanna
Næsta fréttMenn úr meiðslum