Eiður í viðtali

0
867

Eiður sem gekk á dögunum til liðs við Tottenham á lánssamningi kom fram í viðtali við vefsíðu Tottenham Hotspur. Þar segist Eiður spenntur yfir því að fá tækifæri til að spila með Tottenham. „Það er gott að vera kominn aftur til Englands,  að vera kominn aftur í búningsklefann, andrúmsloftið, húmorinn, þetta er allt gott“ sagði Eiður. „Ég er mjög þakklátur og hlakkar til að leika með Tottenham Hotspur.“

Þegar maður vaknar upp á leikdegi er eins og allur heimurinn sé að horfa á ensku úrvalsdeildina og ég sakna þess, og hlakka til að upplifa það“.

 

En hvað mun koma Eiðs breyta fyrir Tottenham? „Ég hef mikla reynslu, ég vona að ég geti gefið leikmönnum innblástur í búningsklefanum, og gefið stjóranum og liðinu fleiri möguleika á öðruvísi leikkerfi/leikstíl. Þetta hefur verið gott tímabil hjá Tottenham og ég vona að ég geti gefið liðinu meiri dýpt og aðra möguleika á leikdegi.“

„Liðið ætti að stefna að 4. sætinu í deildinni og virkilega leggja sig alla fram um að ná því, að gera það og vera ennþá í bikarkeppni þurfum við stóran hóp til að ná takmarkinu. Ég vonast til að vera hluti af þeim hóp.“

„Ég er mjög spenntur. Það er frábær tilfinning að vera kominn aftur og það má segja að ég hafi fundið hvatningu aftur. Ég er mjög ákveðinn í að gera allt sem ég get til að hjálpa liðinu.“