Enn bíða stuðningsmenn sigurs

0
637

Ekki tókst Tottenham að landa sínum fyrsta sigri í deildinni þegar liðið heimsótti Portsmouth á Fratton Park í 6.umferð úrvalsdeildarinnar. Leiknum lauk með 2-0 sigri Portsmouth manna þar sem Jermain Defoe, fyrrum leikmaður Spurs, skoraði fyrra markið úr víti og Peter Crouch skoraði síðara markið. Liðið situr því enn á botni deildarinnar með 2 stig og útlitið er svo sannarlega ekki gott.

Enn á ný gerði Ramos breytingar á liði sínu frá sigurleiknum gegn Newcastle í bikarnum og má geta þess að hann hafi haft leikinn gegn Wisla Krakow á fimmtudaginn í huga þegar hann skrifaði niður nöfn á leikskýrsluna. Í markinu stóð þó Gomes sem fyrr en vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, Dawson, Woodgate og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Bentley, Jenas, Zokora, O´Hara og Gilberto og því var Pavlyuchenko einn frammi. Bekkurinn var skipaður þeim Cesar, Gunter, Huddlestone, Modric, Bent, Lennon og Giovani.

     Jafnræði ríkti með liðum í upphafi leiks. Bentley átti góða sendingu fyrir markið úr aukaspyrnu sem Woodgate skallaði að marki en boltinn fór þó framhjá. Á hinum endanum komst Defoe einn innfyrir eftir sendingu frá Crouch en það var leikmönnum Tottenham til lukku að línuvörðurinn dæmdi réttilega rangstöðu. Hughes átti einnig skot að marki en Gomes varði vel. Corluka átti svo ágætis sprett upp hægri kantinn og ekki munaði miklu að O´Hara næði boltanum eftir fyrirgjöf Corluka en það tókst þó ekki. Leikmenn Portsmouth náðu svo að auka pressuna og á 20.mínútu varði Gomes frábærlega eftir þrumuskot frá Hughes. En ólánið elti Tottenham og á 33.mínútu var dæmd vítaspyrna á Tottenham eftir að Jenas handlék boltann þegar hann reyndi að hreinsa frá fyrirgjöf af hægri kantinum. Defoe steig á vítapunktinn og skoraði framhjá Gomes í markinu, sem var þó ekki langt frá því að verja skotið. En staðan orðin 1-0 fyrir heimamenn. Lítið annað markvert gerðist í fyrri hálfleik og Portsmouth héldu því eins marka forystu í hálfleik.

     Ramos gerði skiptingu í hálfleik þar sem hann tók Gilberto af velli og inná í hans stað kom Lennon og átti skiptingin að auka hraðan í leik liðsins. Leikur liðsin breyttist til muna og átti Johnson í fullu fangi með að verjast gegn hinum leiftrandi fljóta Lennon. Litlu munaði að Pavlyuchenko næði að skora eftir fyrirgjöf frá Lennon en skalli hans fór rétt framhjá. Belhadj átti ágætt skot að marki Spurs sem Gomes náði að verja. Stuttu síðar gerðist mjög svo umdeilt atvik. Lennon sendi boltann fyrir markið en boltinn fór í hönd Diarra, ekki svo ólíkt atvikinu í fyrri hálfleik þegar Portsmouth fékk dæmda vítaspyrnu. En í þetta skiptið sá dómari leiksins, Dean, ekki ástæðu til að dæma víti við lítinn fögnuð gestanna. Eftir tæplega klukkustundar leik gerði Ramos aðra skiptingu, Zokora fór af velli og Giovani kom inná í hans stað. Sá síðarnefndi olli nokkrum usla með leik sínum og vann meðal annars aukaspyrnu á ágætis stað. Bentley tók spyrnuna en örlítið vantaði upp á að Pavlyuchenko næði að pota boltanum inn. Þrátt fyrir að sóknarleikur Spurs hefði batnað til muna þá voru það heimamenn sem bættu við marki á 67.mínútu eftir hraðasókn. Traore skaut hörkuskoti að marki sem Gomes varði, en hann náði ekki að halda boltanum og Crouch náði að skalla honum í netið. Staðan því orðin 2-0 og útlitið allt annað en gott fyrir gestina. Bent var því settur inná til að reyna að koma boltanum í netið og af velli í hans stað fór Pavlyuchenko, skipti sem komu mörgum á óvart. Flestir hefðu talið að betra hefði verið að bæta við sóknarmanni á kostnað varnar- eða miðjumanns en ekki að taka sóknarmann út af fyrir annan sóknarmann. Poyet sagði þó í viðtali eftir leikinn að ekki væri hægt að láta Bent og Pavlyuchenko spila saman þar sem þeir væru of líkir leikmenn og setur það því stórt spurningarmerki við þessi kaup í sumar. Hví var verið að kaupa mann sem getur ekki spilað með hinum sóknarmanninum? En því geta topparnir hjá Spurs einungis svarað. Bent og Lennon áttu ágætis færi en James sá við þeim. Diarra, leikmaður Pompey, var svo rekinn af velli á lokamínútum leiksins eftir að hafa fengið sitt annað gula spjald eftir brot á Ekotto. En það kom ekki að sök, sigurinn var í höfn fyrir leikmenn Portsmouth og erfiðleikar Spurs halda áfram.

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Dawson, Woodgate, Ekotto, Bentley, Jenas, Zokora (Giovani), O´Hara, Gilberto (Lennon), Pavlyuchenko (Bent). Ónotaðir varamenn: Cesar, Gunter, Huddlestone og Modric.

DEILA
Fyrri fréttDregið í Carling Cup
Næsta fréttDregið í UEFA cup