Enn einn sigurinn

0
750

Tottenham lagði lið Leyton Orient í æfingaleik í gærkveldi með 4 mörkum gegn 2. Mörk Tottenham gerðu þeir Keane (2), Defoe og Bent.

Martin Jol stillti upp ansi sterku liði og reyndi svokallaða demantauppstillingu á miðjunni. Huddlestone spilaði þá sem varnartengiliður, Jenas og Malbranque á köntunum og Keane nokkuð fyrir aftan sóknarparið, Berbatov og Bent. Robinson var í marki og vörnin var skipuð þeim Ifil, Dawson, Kaboul og Stalteri.

Tottenham byrjaði leikinn vel og átti nokkur færi en á 18. mín skoraði Boyd fyrir Leyton gegn gangi leiksins. En það tók Tottenham þó ekki nema 42 sekúndur að jafna leikinn. Malbranque skaust þá upp vinstri kantinn og gaf fyrir lágan boltann inn í teiginn sem endaði að lokum fyrir fótum Keane sem skaut honum í netið. Eftir að hafa jafnað leikinn voru Spurs mun betri og áttu nokkur skot og ma. skoraði Bent mark sem dæmt var af vegna rangstöðu. Svo að staðan í hálfleik var jöfn 1-1.

Í hálfleik gerði Jol þrjár breytingar. Cerny, Routledge og Defoe komu inná fyrir Robinson, Malbranque og Berbatov. Á 54. mínútu gaf Kaboul langan bolta á Bent sem lék á markmann Leyton og skaut en skotið var varið á línu. Boltinn barst þá til Kaboul sem var þá kominn í teiginn en þar var brotið á honum og dæmt víti. Robbie Keane steig á vítapunktinn og skoraði örugglega. Á 60.mínútu jókst forskotið þegar Huddlestone gaf á Defoe sem hamraði boltanum með vinstri fæti í netið frá vítateigslínunni. Glæsilegt mark og án efa mark leiksins. Defoe var ekki hættur í þessum leik því 5 mínútum síðar gaf hann sendingu á Bent sem potaði boltanum snyrtilega í netið framhjá Nelson og staðan því orðin 4-1 fyrir Tottenham. Defoe skoraði svo enn eitt markið þegar leið á leikinn en það var dæmt af vegna rangstöðu. Leikmenn Leyton Orient náðu svo að klóra aðeins í bakkann í uppbótartíma þegar Echanomi, varamaður þeirra, skoraði af löngu skoti. Lokastaða 4-2 fyrir Tottenham.

 

Lið Spurs: Robinson (Cerny 46), Ifil, Stalteri, Dawson (Rocha 72), Kaboul, Huddlestone, Jenas (O´Hara 72), Malbranque (Routledge 46), Keane (Taarabt 61), Berbatov (Defoe 46), Bent. Ónotaðir varamenn: Mills, Maghoma.