Enn jafnt í FA bikarnum

0
781

Tottenham heimsótti Fulham á Craven Cottage í 8 liða úrslitum FA bikarsins um helgina. Fulham lagði Notts County í 16 liða úrslitum en Tottenham hafði sigurhöndina í einvígi gegn Bolton en spila þurfti 2 leiki sökum jafnteflis í fyrri leiknum. Liðin hafa mæst tvisvar sinnum á þessu tímabili í deildinni þar sem leiknum á Craven Cottage lauk með markalausu jafntefli en Tottenham hafði sigur úr býtum á White Hart Lane. Bæði lið reyndu að sækja til sigurs í þessum leik þar sem leikjaálag á liðunum er nóg um þessar mundir, en hvorugu liðinu tókst þó að skora og því lauk leiknum með markalausu jafntefli. Liðin leika því að nýju þann 24. mars um það hvort liðið fer í undanúrslitaleikinn á Wembley.

 

Það var frekar auðvelt verkefni fyrir Harry að stilla upp liðinu fyrir þennan leik enda mikil meiðsli sem herja á liðið um þessar mundir auk þess sem nokkrir leikmenn eru ekki gjaldgengir með Tottenham í FA bikarnum þetta árið þar sem þeir hafa spilað fyrr í keppninni með öðrum liðum. Liðin var þannig skipað að Gomes stóð á milli stanganna og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, Dawson, Bassong og Ekotto. Á miðjunni spiluðu þeir  Kranjcar, Palacios, Modric og Bale og frammi byrjuðu leikinn þeir Crouch og Pavlyuchenko. Á bekknum sátu nokkrir ungir leikmenn í bland við þá eldri og reyndari, en á bekknum sátu þeir Alnwick, Dervite, Livermore, Rose, Townsend, Guðjohnsen og Defoe.

 

Fyrsta stundarfjórðung leiksins var ekki mikið um hættuleg tækifæri. Bæði lið spiluðu agaðan varnarleik og hvorugu liðinu tókst að skapa sér hættuleg færi. Á 18.mínútu átti Kranjcar skot að marki úr aukaspyrnu en boltinn fór framhjá. Mínútu síðar kom fyrsta alvöru færi leiksins þegar Zamora skaut að marki innan úr teig eftir að Corluka mistókst að hreinsa frá en Gomes var vel vakandi og varði skotið. Þegar tæpur hálftími var liðinn af leiknum jókst sóknarþungi Tottenham liðsins. Schwarzer þurfti að hafa sig allan við þegar Kranjcar þrumaði boltanum á markið af löngu færi en Schwarzer tókst að blaka boltanum framhjá. Stuttu síðar átti Crouch skalla að marki eftir fyrirgjöf frá Kranjcar en Schwarzer náði að pota boltanum yfir markið. Úr hornspyrnunni munaði ekki miklu að Bassong næði að koma boltanum í netið en boltinn hafnaði ofan á marknetinu. Á 35. mínútu fengu leikmenn Tottenham upplagt færi þegar Ekotto gaf fyrirgjöf inn í teiginn á fjærstöngina  og Crouch náði til boltans. Hann kaus að skjóta að marki og hitti ekki boltann nógu vel, en eftirá að hyggja hefði verið mun betra fyrir hann að renna boltanum aftur fyrir markið. Zamora fékk svo tækifæri til að koma Fulham yfir á lokamínútum fyrir hálfleiks þegar hann var nánast kominn einn innfyrir en Dawson og Gomes náðu að koma hættunni frá með góðri samvinnu. Staðan í hálfleik var því jöfn, 0-0.

 

Strax á fyrstu mínútu síðari hálfleiks fengu Fulham menn dauðafæri en Gomes varði meistaralega. Davies sendi boltann fyrir markið á Zamora sem skallaði hann áfram á Gera sem var vel staðsettur fyrir framan markið. Gera skallaði að markinu en Gomes var vel vakandi og náði til boltans. Á 50.mínútu átti Etuhu skalla að marki eftir hornspyrnu en boltinn hafnaði beint í fanginu á Gomes. Á 54.mínútu vildu leikmenn Tottenham fá vítaspyrnu þegar Hangeland handlék knöttinn innan vítateigs en dómarinn var ekki á sama máli og leikurinn hélt því áfram. Á 58. mínútu var Dawson nálægt því að skora með góðu skoti að marki eftir hornspyrnu, en boltinn fór rétt framhjá. Þegar klukkustund var liðin af leiknum fékk Duff ágætt færi en skot hans fór rétt framhjá markinu. Fjórum mínútum síðar átti Duff aftur skot að marki eftir gott spil Fulham manna en Gomes varði meistaralega. Þegar um 10 mínútur voru til leiksloka ákvað Harry að gera skiptingu enda lítið að gerast fyrir framan mark Fulham manna þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Defoe kom inná en Pavlyuchenko vék af velli í hans stað. En það voru Fulham menn sem áttu hættulegustu færin á lokamínútunum með Zamora í fullu fjöri fyrir framan mark gestanna en inn vildi boltinn ekki. Leiknum lauk því með markalausu jafntefli og verða því liðin að mætast á nýjan leik til að fá úr því skorið hvort liðið mætir Portsmouth í undanúrslitum á Wembley um miðjan aprílmánuð.

 

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Dawson, Bassong, Ekotto, Kranjcar, Palacios, Modric, Bale, Pavlyuchenko(Defoe), Crouch. Ónotaðir varamenn: Alnwick, Dervite, Rose, Townsend, Livermore, Guðjohnsen.

 

 SAJ