Everton endar sigurgöngu Tottenham

0
628

Tottenham heimsótti Everton á Goodison Park í öðrum leik ársins og þeim fjórða á 11 dögum, en jólin og áramótin eru ávallt annasamur tími í enska boltanum. Leikmenn Tottenham fóru fullir sjálfstraust í leikinn enda á góðu róli og höfðu ekki tapað í síðustu 11 leikjum í öllum keppnum. En dagurinn var klárlega ekki þeirra að þessu sinni og spurning hvort þreyta hafi farið að segja til sín eftir annasama daga, en Everton menn fengu aukahvíld þar sem leik þeirra á Jóladag var frestað. Leikmenn Everton komu mun ákveðnari til leiks og áttu sigurinn skilið í þessari viðureign. Luis Saha kom Everton yfir með löngu skoti strax á 3.mínútu. Á 11. mínútu jafnaði Van der Vaart metin fyrir Tottenham með góðu skallamarki eftir skallafyrirgjöf frá Crouch, eins og þeim tveimur er einum lagið. Bale fór af velli eftir 58 mínútur vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leiknum, en þau eru þó ekki talin alvarleg. Kranjcar leysti hann af hólmi. Þegar rúmur stundarfjórðungur var eftir af leiknum náðu Everton menn forystunni á ný með marki frá Coleman úr hraðaupphlaupi, en hann náði frákastinu fyrstu eftir að Gomes varði þrumuskot Saha. Leikmenn Tottenham reyndu að jafna leikinn en það tókst ekki og því hirtu Everton menn öll þrjú stigin.

Lið Spurs: Gomes, Hutton, Gallas, Dawson, Ekotto, Lennon (Keane 80), Jenas, Modric, Bale (Kranjcar 58), Van der Vaart, Crouch. Ónotaðir varamenn: Pletikosa, Corluka, Bassong, Palacios, Pavlyuchenko.