Everton-Tottenham 1-2

0
779

Það er heldur að lyftast brúnin á Spursurum eftir tvo útisigra í röð. Fyrst í FA bikarnum og í gærkvöldi í frestuðum deildarleik gegn Everton á útivelli.
Það er alveg sýnilegt að leikmenn Tottenham koma ákveðnari í leiki nú en til skamms tíma. Jol varð að gera tvær breytingar. Berbatov kom inn fyrir Mido sem var meiddur og Jenas kom í stað Steed en Jenas tók út leikbann í leiknum við Fulham. að öðru leyti var liðið það sama frá Fulhamleiknum.
Leikur byrjaði ágætlega og á 35. mínútu vann Tainio boltan á miðjunni og kom honum á Lennon sem tók strikið upp hægri kantinn. Hann átti svo fyrirgjöf á Berbatov sem var óvaldaður úti í teiknum fjær og átti ekki í vandræðum með að setja tuðruna framhjá Howard markmann. nokkrum mínútum síðar veifaði línuvörðurinn brot á leikmann Everton gegn Dawson en dómarinn snéri dómnum við og dæmdi á Dawson. Arteta skoraði beint úr aukaspyrnunni. Okkar menn gáfu dálítið eftir í seinni hálfleik en þegar um korter var eftir náðu þeir undirtökunum og það var svo Jenas eftir sendingu frá Steed, sem hafði komið inn fyrir Lennon, sem skoraði sigurmarkið á 88. mínútu. Eins og áður segir þá barðist liðið í þessum leik og leikmenn eins og Robinson, Tainio og Berbatov áttu fínan leik.
Liðið:  Robinson, Chimbonda, Dawson, Gardner, YP Lee, Lennon (Malbranque, 79), Jenas, Zokora, Tainio, Berbatov, Keane. Varamenn: Cerny, Stalteri, Ghaly, Defoe.