Tottenham lék gegn Slavia Prag í kvöld fyrri leik sinn í fyrstu umferð UEFA keppninnar. Tottenham var betra liðið nær allan tímann og sigraði 0-1 með marki frá Jenas eftir undirbúning Zokora.
Tottenham lék ágætlega í þessum leik og þeir Slavia menn ógnuðu ekki mikið. Þeir voru þó ekki lélegir og komust nokkuð inn í leikinn í seinni hálfleik. Markið kom svo á 37. mínútu eftir að Huddlestone vann bolta á miðjunni. Hann kom honum til Mido sem sendi á Zokora. Zokora tók á rás upp miðjan völlinn eina fjörtíu metra á fullri ferð og renndi svo boltanum út til hægri á Jenas sem var komin að vítateigs horninu. Viðstöðulaust skotið frá Jenas fór í fjærhornið án þess að markmaðurinn kæmi vörnum við. Defoe átti góða tilraun eftir að hafa snúið af sér varnarmann og fleiri fengu færi án þess að nýta þau. Besta færið var þegar Keane var einn á móti markmanni og reyndi skot vinstra meginn við markmannin sem hann varði þegar manni sýndist betra að fara til vinstri fram hjá markmanninum og renna boltanum í markið.
Allri voru að spila vel en Zokora og Jenas stóðu uppúr í kvöld að mínu mati. Eins átti Huddlestone góðan leik en þetta er í fyrsta skipti sem hann er í byrjunarliði Tottenham. Vörnin var þétt og ég er samfærður um að ef þessi vörn helst að mestu í vetur þá verður það ekki oft sem ENO þarf að sækja boltann í netið í vetur. Seinni leikurinn í þessari umferð veriður þann 28. sept. á WHL.
Liðið: Robinson, Chimbonda, Assou-Ekotto, King, Dawson, Zokora, Huddlestone (Davids, 72), Jenas, Tainio, Defoe (Keane, 78), Mido. Varamenn: Cerny, Stalteri, Lee, Ziegler, Davenport.






