Tottenham hefur nýtt sér rétt í samningi við Steven Kelly til að semja við hann í eitt ár í viðbót. Hinvegar hefur Mido snúið aftur til Roma og verður því ekkert af því að hann sé keyptur. Þá hafa samningar Naybet og Bunji runnið út og eru þeir því farnir frá félaginu.
Af leikmönnum varaliðsins og unglingaliðsins er það að frétta að Charlie Daniels, Tommy Forcast, Andy Barcham og Cherlie Lee ásamt Robert Burch hafa allir skrifað undir framlengingu á sínum samningum. Chris Riley hefur skrifað undir sinn fyrsta atvinnumannasamning.
Þeir Marcel Mckie, Nathan Peprah-Annan og John Kyriacou hafa verið losaðir undan samningi og Richard Heller er farinn til Sudbury og Claude Seanla er farinn til Watford.
Klúbburinn óskar þeim sem eru farnir farsældar í nýjum verkefnum og þakkar þeim þeirra framlag og við óskum þeim sem fá nýja samninga til hamingju með það.






