Page 24

Sandro með nýja klippingu

0

Miðjumaður Tottenham, Sandro er kominn með nýja klippingu sem hefur vakið mikla athygli upp á síðkastið. Frekar furðuleg klipping hjá manninum. Þess má til gamans geta að Sandro er farinn að æfa á fullu og gæti jafnvel tekið þátt í leiknum á morgun á móti Stoke City í deildarbikarnum.

Tottenham – Liverpool 4-0

0

Tottenham gjörsigraði lið Liverpool í dag á WHL , lokatölur urðu 4-0.
Mörk Tottenham skoruðu Modric , Defoe og Adebayor 2.

Harry Redknapp gerði 10 breytingar á liðinu sem byrjaði í Grikklandi á fimmtudaginn var. 
Byrjunarliðið var á þennan veg :
Friedel – Walker – King – Kaboul – Ekotto – Kranjcar – Modric – Parker – Bale – Defoe – Adaybayor.
Varamenn : Cudicini , Bassong , Corluka , Giovani , Livermore , Pavloychenko , Van der Vaart.

Evrópudeildin byrjar á jafntefli

0

Tottenham gerði jafntefli í gær 0-0 í fyrsta leik sínum í Evrópudeildinni.  Leikið var gegn PAOK Saloniki frá Grikklandi og leikið var í Grikklandi.
Harry Redknapp gerði 10 breytingar á byrjunarliðinu frá sigurleiknum gegn Wolves um síðustu helgi.
6 leikmenn í byrjunarliðinu voru 21.árs eða yngri.
Lið Tottenham þótti heilt á litið betra liðið í leiknum en bestu færin fengu Grikkirnir,  m.a.  misnotuðu þeir vítaspyrnu í fyrri hálfleik ( sem þurfti að endurtaka – skoruðu í fyrri spyrnunni ) og svo í lokin pressuðu Grikkirnir stíft að marki Tottenham og áttu skalla í slá.

Fyrstu stigin í hús

0

Tottenham sigraði lið Úlfana á laugardaginn var á útivelli. Lokatölur voru 0-2.

Nýju leikmennirnir í liði Tottenham þeir Scott Parker og Emmanuel Adebayor stóðu fyrir sínu og sáu um fyrra mark leiksins.

Parker átti þá flotta sendingu á Adebayor sem skoraði af öryggi. Stuttu síðar innsiglaði Defoe sigurinn. Allt annað var að sjá til liðsins í þessum leik miðað við tvo fyrstu leikina á tímabilinu.

  .

Dregið í Evrópudeildinni

0

Dregið var í Evrópudeildinni í morgun og var Tottenham í pottinum eftir að hafa lagt Hearts að velli í undanspilinu. Tottenham var dregið í riðil með rússneska liðinu, Rubin Kazan, gríska liðinu PAOK og írska liðinu Shamrock Rovers. Leikjaniðurröðun verður birt síðar.

Tveir leikmenn til liðsins á láni

0

Tottenham tilkynnti í gærkveldi að liðið hefði náð samningum við annars vegar Manchester City og hinsvegar Juventus um lán á leikmönnum. Emmanuel Adebayor hefur gengið til liðs við klúbbinn á árslöngum lánssamningi frá City. Adebayor er stuðningsmönnum vel kunnugur enda lék hann fyrir Arsenal áður en hann fór til City. Á síðasta ári var hann á láni hjá Real Madrid og skoraði m.a.s. í Meistaradeildarleiknum gegn Tottenham. Frá Juventus kemur svo hinn 21árs gamli miðjumaður Yago Falque. Hann var á láni hjá Villareal á síðustu leiktíð og stóð sig ágætlega þar en skiptir nú um umhverfi og verður á láni hjá Tottenham út leiktíðina.

 

Við bjóðum þá báða velkomna til liðsins og vonum að þeir blómstri á nýjum stað.

Tottenham 0 – Hearts 0

0

Tottenham tók á móti Hearts í síðari viðureign liðanna í undankeppni Evrópudeildarinnar á fimmtudagskvöld. Harry stillti upp afar breyttu liði og gaf hann ungum leikmönnum tækifæri til að sýna hvað í þeim býr. Meðal byrjunarliðsmanna voru Townsend, Fredericks, Livermore, Carroll og Kane. Leikmenn Tottenham byrjuðu leikinn betur en besta færið kom eftir ca hálftíma leik þegar Kane fékk dæmda vítaspyrnu á Hearts menn. Hann kaus sjálfur að taka spyrnuna en markvörður Hearts varði hana. Í síðari hálfleik komu Hearts menn sterkari til leiks, en hvorugu liðinu tókst þó að koma boltanum í netið og skildu þau því jöfn 0-0.

Stórsigur í Evrópudeildinni

0

Tottenham heimsótti Hearts í fyrri viðureign liðanna í undankeppni Evrópudeildarinnar á fimmtudagskvöldið. Harry kaus að stilla upp nokkuð sterku liði, en athygli vakti að Jake Livermore byrjaði leikinn á miðjunni sökum meiðsla margra leikmanna. Hearts menn reyndust ekki erfið bráð í þessum leik og lauk leiknum með 0-5 sigri Tottenham og er liðið því komið með annan fótinn í riðlakeppnina, en seinni leikurinn er þó eftir á WHL að viku liðinni. Mörk Tottenham skoruðu þeir Van der Vaart, Defoe, Livermore, Bale og Lennon.

Keane seldur

0

Robbie Keane hefur verið seldur til bandaríska liðsins LA Galaxy, og verður því liðsfélagi David Beckhams. Keane hefur ekki verið í plönum Redknapps um tíma og hefur ma. verið á lánssamningi hjá Celtic og West Ham. Hann gengur nú til liðs við Galaxy og þó að kaupverðið hafi ekki verið gefið upp er talið að það sé á bilinu 2-3m punda. Við óskum Keane góðs gengis í Bandaríkjunum og þökkum honum fyrir framlag hans til liðsins.

Heimasíðan óskar eftir áhugasömum pennum!

0

Heimasíða Tottenham klúbbsins óskar eftir áhugasömum pennum til að skrifa á heimasíðu klúbbsins. Þeir sem hafa áhuga senda póst á sigrunasta69(hja)gmail.com.

Nýjustu fréttirnar