Tottenham lék fyrir um viku síðan við lið QPR og var leikið á White Hart Lane , heimavelli Tottenham. Lokatölur voru 3-1 þar sem Bale skoraði tvívegis og Van Der Vaart setti eitt. Tottenham liðið spilaði mjög vel í þessum leik að stærstum hluta og hefðu verðskuldað átt að vinna stærri sigur.
Erfiður sigur á Blackburn
Tottenham sigraði lið Blackburn á sunnudaginn var með tveimur mörkum gegn einu. Leikið var á heimavelli Blackburn , Ewood Park. Bæði mörk Tottenham í leiknum skoraði Van Der Vaart sem hefur verið mjög heitur upp á síðkastið ( 5. markið í fjórum leikjum ). Þetta var mjög erfiður sigur enda lið Blackburn ekki auðvelt heim að sækja.
Sigur í Evrópudeildinni
Tottenham vann sinn annan sigur í röð í Evrópudeildinni þegar lið Rubin Kazan frá Rússlandi kom í heimsókn á fimmtudaginn var. Lokatölur 1-0 þar sem Pavluychenko skoraði eina mark leiksins, og var það mark svo sannarlega glæsilegt.
Jafntefli á St. James Park
Sigurganga Tottenham í úrvalsdeildinn tók enda á sunnudaginn var þegar liðið heimsótti Newcastle á St. James Park. Lokatölur 2-2 þar sem Tottenham komst tvisvar yfir í leiknum. Mörk Tottenham skoruðu Van Der Vaart og Defoe.
Árgjald Tottenhamklúbbsins
Bankinn var að senda út greiðsluseðla fyrir ársgjaldi Tottenhamklúbbsins á Íslandi. Ætti að birtast í heimabönkum allra. Þetta er auðvitað valkrafa í heimabankanum og kemur ekki til með að safna dráttarvöxtum eða öðru slíku.
kv
Birgir
Sigur á Arsenal
Tottenham hélt áfram á sigurbraut í Ensku úrvalsdeildinni í gær þegar liðið sigraði granna sína í Arsenal 2-1 á White Hart Lane. Þetta var jafnframt fjórði sigurleikur Tottenham í röð í Ensku úrvalsdeildinni. Mörk Tottenham skoruðu Van Der Vaart og Kyle Walker.
Tottenham – Arsenal – upphitun
Það styttist óðum í fyrsta "Derby" leikinn á tímabilinu. Tottenham – Arsenal á sunnudaginn kl. 15.00 að íslenskum tíma. Langaði að henda inn hérna smá upphitun fyrir þennan stórleik.
Sigur í Evrópudeildinni
Tottenham vann sinn fyrsta sigur í Evrópudeildinni þetta tímabilið í kvöld. Liðið lék gegn Shamrock Rovers frá Írlandi og var spilað á WHL heimavelli Tottenham. Leikar enduðu 3-1 eftir að staðan í hálfleik hefði verið 0-0. Mörk Tottenham skoruðu Pavlyuchenko , Defoe og Dos Santos.
Þriðji sigurleikurinn í röð
Tottenham heimsótti lið Wigan í gær og unnu þar sinn þriðja sigur i röð í deildinni. Lokatölur urðu 1-2. Mörk Tottenham skoruðu VdV og Bale. Með þessum sigri er liðið komið upp í efri hluta deildarinnar og eiga frestaðan leik inni á móti Everton heima.
Tottenham úr leik í deildarbikarnum
Tottenham féll úr leik í deildarbikarnum á þriðjudaginn var. Leikið var gegn Stoke City á útivelli og fóru leikar á þann veg að Stoke sigraði í vítakeppni 7-6 eftir að staðan eftir venjulegan leiktíma og framlengingu var 0-0.
Harry Redknapp gerði margar breytingar frá sigurleiknum gegn Liverpool og stillti upp ungu liði í bland við reynslumeiri leikmenn.
Næsti leikur liðsins er á laugardaginn 24.9 gegn Wigan á útivelli. Vonar maður að liðið haldi á sömu braut í deildinni og verið hefur.





