Sigur á Arsenal

0
749

Tottenham hélt áfram á sigurbraut í Ensku úrvalsdeildinni í gær þegar liðið sigraði granna sína í Arsenal 2-1 á White Hart Lane.  Þetta var jafnframt fjórði sigurleikur Tottenham í röð í Ensku úrvalsdeildinni.  Mörk Tottenham skoruðu Van Der Vaart og Kyle Walker.

Harry Redknapp stillti upp sama liði og byrjaði gegn Wigan vikunni á undan.  Leikurinn byrjaði fjörlega og voru Tottenham menn ívið betri og beittari þó að Arsenal væri meira með boltann.  Scott Parker fékk eðalfæri um eftir einungis 6 mínútur þegar hann komst einn gegn markverði Arsenal,  aðeins frá hlið og skotglugginn var lítill og markvörður Arsenal varði vel.  Besta færi Arsenal fékk Gervinho þegar hann fékk boltann í teignum eftir gott hlaup hjá Van Persie,  en hann skaut framhjá þegar markið blasti við.  Þar slapp Tottenham fyrir horn. 

vdv_fagn_vs_arsenal.jpgÞað var var svo 5 mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks að Tottenham komst yfir.  Adebayor átti þá frábæra sendingu frá hægri á Rafael Van Der Vaart sem tók boltann á kassann og átti gott skot í fjærhornið neðst,  óverjandi og staðan orðin 1-0 og þannig stóðu leikar í hálfleik.

Seinni hálfleikur byrjaði ekki nægilega vel hjá Tottenham og Arsenalmenn gengu á lagið og stjórnuðu leiknum til að byrja með.  Einhver sofandaháttur hjá leikmönnum Tottenham.  Seinni hálfleikur var ekki nema um 6 mínútna gamall þegar Arsenal jafnaði,  Song fékk þá að hlaupa óáreittur inn í teiginn vinstra megin og þegar að endamörkum var komið átti hann fasta sendingu fyrir sem Ramsey setti í netið af stuttu færi.  Mjög slakur varnarleikur þarna af hálfu Tottenham.  Arsenal virtust vera að taka öll völd á vellinum eftir markið og voru líklegri til að skora.  Adebayor fékk svo eðalfæri til að koma Tottenham í 2-1 þegar hann fékk frábæra sendingu frá Bale og var einn gegn markverði Arsenal en skotið var varið frá honum.  

walker_skot.pngÁ 73. mínútu kom svo sigurmark Tottenham,  þegar Kyle Walker fékk boltann á miðjum vallarhelming Arsenal , lék aðeins áfram og lét vaða af um 30 metra færi og boltinn söng í netinu.  Líklega hefði markvörður Arsenal átt að gera betur en boltinn tók rosalega beygju í skotinu.  Það sem eftir lifði leiks voru Arsenal meira með boltann án þess að skapa sér almennileg færi á meðan Tottenham fengu færi til að gera út um leikinn og komast í 3-1.  Fyrst fékk Bale eðalfæri eftir hrikaleg mistök í vörn Arsenal en hann setti boltann nokkra cm framhjá markinu,  svo átti Defoe hörkuskot fyrir utan teig með vinstri sem markörður Arsenal gerði vel að verja.  Tíminn fjaraði út og sigur Tottenham staðreynd. 

Lið Tottenham í leiknum :

Friedel – Walker – King – Kaboul – Ekotto – VdV ( Sandro 63 ) – Modric – Parker ( Corluka 90 ) – Bale – Defoe – Adebayor ( Livermore 84 )

Ónotaðir varamenn :  Cudicini – Bassong – Pavlyuchenko – Giovani

Allir leikmenn Tottenham voru frábærir í þessum leik ….  King og Kaboul töpuðu varla skallabolta í leiknum.  En maður leiksins að mínu mati var Scott Parker sem var frábær á miðjunni.  Þeir sem voru með einhverjar efasemdir þegar Tottenham keypti hann í sumar fyrir "slikk" eru líklega núna búnir að snúast hugur gagnvart Parker.  Búinn að vera frábær síðan hann kom.

BÓ