Það styttist óðum í fyrsta "Derby" leikinn á tímabilinu. Tottenham – Arsenal á sunnudaginn kl. 15.00 að íslenskum tíma. Langaði að henda inn hérna smá upphitun fyrir þennan stórleik.
Leikdagur : Sunnudagurinn 2. október 2011 kl. 15.00
Leikstaður :
White Hart Lane
Það er alltaf fjör þegar Tottenham og Arsenal mætast , enda nágrannaslagur af bestu gerð. Frá því að úrvalsdeildin byrjaði hafa liðin mæst 18. sinnum á WHL og hefur Tottenham unnið 4 leiki , Arsenal 4 leiki og jafnteflin eru 10 talsins. Á síðasta tímabili fóru leikar 3-3 í þrælskemmtilegum leik. Við sigruðum Arsenal 2-1 leiktíðina 2009-2010. Tottenham tapaði síðast heimaleik gegn Arsenal í deildinni tímabilið 2007-2008 , þegar Tottenham tapaði 1-3 þar sem Adebayor nokkur skoraði 2 mörk !! Honum tókst einmitt að skora 8 sinnum gegn Tottenham í 9 leikjum með Arsenal á sínum tíma. Þannig að það er hið besta mál að hann sé í okkar röðum núna.
Árangur Tottenham og Arsenal í deildinni á þessu tímabili hefur verið upp og ofan , bæði lið byrjuðu mótið mjög illa. Arsenal t.d. töpuðu fyrir Manchester United á Old Trafford 8-2 sem eru ótrúleg úrslit. Einnig hefur Arsenal tapað leikjum gegn Liverpool og Blackburn. Lið Arsenal varð fyrir miklu áfalli fyrir mót þegar þeirra besti maður í mörg ár , Fabregas var seldur til Barcelona, einnig misstu þeir Nasri og Clichy til Manchester City. Á móti kom að Wenger keypti nokkra leikmenn undir lok félagsskiptagluggans.
Tottenham byrjaði mótið á slæmu nótunum og töpuðu fyrir báðum Manchester liðunum samtals 1-8 !! en síðan þá hefur liðið verið að bæta sig mikið og unnið síðustu þrjá leikina í deildinni þ.a.m. Liverpool heima 4-0. Nýju leikmennirnir í Tottenham , þeir Scott Parker og E.Adebayor hafa aldeilis slegið í gegn og passa vel inn í liðið.
.
.
Fyrir þennan leik er staða liðanna í deildinni á þennan veg.
Sæti Spilaðir leikir Sigrar Jafntefli Tapleikir MS – MF +/- Stig
6. Tottenham 5 3 0 2 9 – 9 0 9
13. Arsenal 6 2 1 3 9 – 14 -5 7
.
.
Lykilleikmenn Tottenham
Luca Modric. Eftir allt ruglið sem fylgdi því að Chelsea vildu kaupa hann í sumar, hefur Modric verið að koma tilbaka og verið að sýna hvað hann getur. Skoraði gull af marki á móti Liverpool og hefur sýnt stíganda í leik sínum frá byrjun móts. Vonum bara að þetta Chelsea rugl sé að baki og við getum farið að njóta getu Modric á vellinum. Þegar hann er með hausinn í lagi er hann klárlega einn af betri miðjumönnum / leikstjórnendum í heiminum í dag.
Gareth Bale. Hefur verið nokkuð góður það sem af er tímabilinu og skoraði sitt fyrsta mark á tímabilinu í sigrinum gegn Wigan um síðustu helgi. Hefur ekki verið að nýta færin sín vel og þarf að laga það. Hefur fiskað tvo leikmenn útaf í vetur , þar sem andstæðingarnir bregða oft á það ráð að sparka Bale niður þegar hann er að nýta hraða sinn og stinga þá af. Er klárlega orðinn einn af lykilleikmönnum í þessu Tottenham liði og flest lið hræðast að mæta honum. Vona bara að hann eigi eftir að gera lítið úr Sagna bakverði Arsenal í leiknum á sunnudag.
Scott Parker. Margir voru með efasemdir um þennan leikmann þegar Tottenham keypti hann í sumar frá West Ham. En hann hefur sýnt það sem af er móti að Tottenham var að fá klassa leikmann í sínar raðir. Er yfirvegaður og baráttuglaður á miðjunni og er með gott auga fyrir spili. Parker á alla möguleika á að verða lykilmaður í þessu Tottenham liði, Parker og Modric áttu t.d. algerlega miðjuna gegn Liverpool um daginn og virðast þeir ná mjög vel saman á miðjunni.
Rafael Van Der Vaart. Átti stórkostlegt tímabil í fyrra og var að mörgum talinn kaup ársins í fyrra í ensku úrvalsdeildinni. Meiðsli hafa svoldið verið að skemma fyrir honum, en hann er frábær knattspyrnumaður. Skoraði t.d. 3 af 6 mörkum Tottenham gegn Arsenal í deildinni í fyrra, vonum því að hann haldi áfram að skora gegn Arsenal.
.
.
Svo er bara að vona að Ledley King verði leikfær … það munar um minna þegar hann er heill og getur spilað. Sérstaklega þegar Dawson er meiddur.
.
Síðast þegar þessi lið léku í deildinni var spilað á Emirates vellinum , heimavelli Arsenal og þar fór Tottenham með sigur af hólmi – unnu Arsenal í fyrsta skipti á útivelli í úrvalsdeildinni. Lokatölur þá voru 2-3 eftir að Arsenal komst í 2-0. Bale , Van Der Vaart og Kaboul skoruðu mörk Tottenham í leiknum sem var bráðfjörugur eins og venjan er þegar þessi lið mætast.
.
.
.
Wenger hefur nokkrum sinnum tapað sér á hliðarlínunni hjá Arsenal og vonar maður að hann eigi eftir að líta svona út á meðan leik stendur á sunnudaginn og eftir leikinn … 🙂
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
Skemmtilegar staðreyndir :
-
Arsenal hefur aðeins unnið einn af síðustu 6 deildarleikjum gegn Tottenham, og engann af síðustu þremur
-
8 af síðustu 11 deildarleikjum milli liðanna á WHL hafa endað með jafntefli
-
Þetta verður 167 leikurinn á milli liðanna. Arsenal hefur unnið 67, Tottenham hefur unnið 52 og 45 jafntefli
-
Arsenal hefur ekki unnið útileik í síðustu 7 útileikjum
-
Arsenal hefur ekki unnið leik með Mike Dean sem dómara í síðustu 8 leikjum …
-
Tottenham er ósigrað á heimavelli í síðustu 15 "derby" leikjum ( Arsenal, Chelsea , West Ham , Fulham ) … eða síðan Tottenham tapaði fyrir Arsenal 1-3 í september 2007.
.
Líklegt byrjunarlið hjá Tottenham á sunnudaginn :
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
Mín spá : 3-1 heimasigur ( Parker , Bale & Adebayor )
.
.
Birgir






