Page 22

Gleðilega hátíð

0

Tottenhamklúbburinn á Íslandi óskar stuðningsmönnum liðsins og fjölskyldum þeirra,  sem og landsmönnum öllum gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á komandi ári.

Tottenham á sigurbraut á nýjan leik

0

Tottenham fékk lið Sunderland í heimsókn á White Hart Lane á sunnudaginn siðasta.  Fór svo að Tottenham bar sigur úr býtum 1-0 án þess að spila sérstaklega vel.  Bale og Defoe voru meiddur og spiluðu ekki og þá meiddist Aaron Lennon í leiknum og gæti verið eitthvað frá.  Eina mark Tottenham í leiknum skoraði Pavlouchenko eftir að hafa komið inná sem varamaður.

Tottenham hefur lokið leik í Evrópudeildinni

0

Tottenham lék á fimmtudaginn var síðasta leik sinn í riðlakeppni Evrópudeildarinnar og var leikið á útivelli gegn Írska liðinu Shamrock Rovers.  Tottenham vann leikinn 0-4 , en þrátt fyrir það komst liðið ekki áfram í 32 – liða úrslit keppninnar.  Tottenham þurfti að vinna Shamrock á fimmtudaginn og treysta á að PAOK myndi sigra Rússneska liðið Rubin Kazan ásamt því að vinna um 5 marka mun sem Rubin Kazan átti á Tottenham. 

Knattspyrnuskóli Tottenham

0

Breiðablik og Tottenham Hotspur FC hafa gert með sér samkomulag um rekstur knattspyrnuskóla fyrir stráka og stelpur á aldrinum 11 – 16 ára (3. – 5. flokkur) fædd 1996-2001 annað árið í röð.
Breiðablik er fyrsta félagið í Evrópu sem kynnir knattspyrnuskóla Tottenham Hotspur til leiks. Yngri flokka starf þeirra er talið vera eitt það besta á Bretlandseyjum í dag og hefur tekið stórstígum framförum undanfarin 10 ár. Vert er að taka fram að þeir þjálfarar sem koma til landsins í sumar eru starfandi yngri flokka þjálfarar hjá Tottenham Hotspur og til þeirra eru gerðar mikla kröfur varðandi menntun innan knattspyrnufræðanna. Einnig munu okkar hæfu þjálfarar starfa á námskeiðunum.
Fjögur námskeið verða haldin. Ákveðið hefur verið að takmarka fjöldann á hvoru námskeiði við 80 iðkendur þar sem þjálfarar Tottenham Hotspur vilja vinna með smærri hópa til að sinna einstaklingum eins og best verður á kosið.
Mikil ánægja var með skólann í fyrra og því ákveðið að halda samstarfinu áfram.


Brotlending á Brittania Stadium

0

Það kom þá að því að sigurleikjahrinu Tottenham lyki.  Fyrsti tapleikur liðsins í deildinni staðreynd síðan í annari umferð.  Liðið heimsótti Stoke City á Brittania Stadium á sunnudaginn var og enduðu leikar með sigri heimaliðsins 2-1.  Mark Tottenham í leiknum skoraði Adebayor úr vítaspyrnu sem Modric fiskaði.  Ekki hægt að segja að úrslitin á sunnudaginn hafi verið sanngjörn,  en dómari leiksins var í aðalhlutverki í síðari hálfleik.

6. sigurleikur Tottenham í röð

0

Tottenham vann sinn sjötta sigurleik í röð í Ensku Úrvalsdeildinni á laugardaginn var þegar Bolton kom í heimsókn á WHL.  Lokatölur 3-0 þar sem Bolton missti Gary Cahill útaf með rautt spjald eftir einungis 18 mínútur.  Mörk Tottenham í leiknum skoruðu Bale , Lennon og Defoe.  Með þessum sigri fór lið Tottenham í annað sætið í deildinni í nokkrar klukkustundir …

Frækinn útisigur á WBA

0

Tottenham hélt sigurgöngu sinni áfram á laugardaginn þegar liðið heimsótti lið WBA heim á The Hawthorns.  Lokatölur 1-3 Tottenham í vil sem lentu 1-0 undir í leiknum.  Mörk Tottenham skoruðu Adebayor 2 og Defoe.  Tottenham komst upp í þriðja sæti deildarinnar með þessum sigri og liðið á rosalegri siglingu í deildinni.

Adebayor sá um Aston Villa

0

Tottenham lék við Aston Villa á White Hart Lane síðastliðið mánudagskvöld og enduðu leikar með sigri Tottenham , 2-0 þar sem Adebayor skoraði bæði mörk Tottenham í leiknum.  Um öruggan sigur var að ræða og hefðu leikmenn Tottenham átt að skora fleiri í leiknum.

Frábær útisigur á Fulham

0

Síðasti leikur Tottenham í deildinni fór fram sunnudaginn 6. nóvember og var leikið gegn Fulham á Craven Cottage.  Lokatölur voru 1-3 Tottenham í vil þar sem Fulham voru betri aðilinn í leiknum en lið Tottenham fór með stigin þrjú heim engu að síður.  Bale , Lennon og Defoe skoruðu mörk Tottenham í leiknum.

Tap í Evrópudeildinni

0

Lið Tottenham fór á Road Trip í síðustu viku og heimsótti lið Rubin Kazan í Rússlandi.  Það þarf ekki að eiga mörg orð um þennan leik sem tapaðist 1-0.  Tottenham voru miklu lakari í þessum leik og átti Cudicini í marki Tottenham stórleik og kom í veg fyrir stærra tap.

Nýjustu fréttirnar