Tottenham heimsótti Chelsea á Stamford Bridge í leik helgarinnar og þurftu bæði lið á öllum stigunum að halda, Chelsea í baráttunni við United um meistaratitilinn og Tottenham í baráttunni um fjórða sætið. Leikmenn Tottenham byrjuðu betur og það var Sandro sem kom Tottenham yfir á 19.mínútu með glæsilegu langskoti, en hann átti stórgóðan leik fyrir liðið að þessu sinni. Allt leit út fyrir að Tottenham færi með forystu inn í hálfleikshlé en á lokamínútunni gerðist umdeilt atvik. Lampard skaut að marki og Gomes missti boltann aftur fyrir sig en náði honum á marklínunni og sjónvarpsupptökur sýndu að boltinn fór ekki yfir línuna. Dómari og línvörður voru þó vissir í sinni sök og dæmdu mark þrátt fyrir mikil mótmæli Tottenham manna. Staðan var 1-1 í hálfleik. Chelsea menn voru svo sterkari aðilinn í seinni hálfleik en Tottenham menn vörðust vel og allt leit út fyrir að liðin myndu skipta stigunum á milli sín. En á lokamínútum leiksins náði Kalou að koma boltanum í netið en ekki voru þó allir sammála um lögmæti marksins, því margir vildu meina að hann væri rangstæður. Markið var þó dæmt gott og gilt og þvi fóru Chelsea menn með sigur af hólmi, 2-1.
Blað klúbbsins komið í póst
Nú er árlegt blað klúbbsins komið í póst og ætti að berast til meðlima fljótlega eftir páska. Þeir sem ekki hafa fengið blaðið í lok þessarar viku mega gjarnan hafa samband við stjórnina (netföng hér til vinstri á síðunni undir stjórn klúbbsins) og við finnum út úr því. Sérstaklega biðjum við þá sem skráð hafa börn sín í klúbbinn að fylgjast með hvort sendingin skili sér. Kveðja, stjórnin.
Spurs 2 – WBA 2
Tottenham tók á móti WBA á White Hart Lane í leik helgarinnar. Leikurinn markaði tímamót fyrir Jermain Defoe en hann skoraði sitt 100. mark fyrir klúbbinn í 254 leikjum og jafnfram 1000.mark liðsins í ensku Úrvalsdeildinni þegar hann kom Tottenham yfir 2-1 í leiknum. Odemwingie kom WBA yfir snemma í leiknum og Pavlychenko jafnaði þegar hálftími var liðinn af leiknum. Defoe kom liðinu yfir eins og áður sagði á 67.mínútu leiksins en því miður dugði það ekki til að hirða öll þrjú stigin því Cox jafnaði metin fyrir WBA á 81.mínútu og skildu því liðin jöfn 2-2 og deildu með sér stigunum.
Jafnt í stórskemmtilegum grannaslag
Tottenham tók á móti nágrönnum sínum og erkifjendum í Arsenal á White Hart Lane í leik dagsins. Leikirnir milli þessa liða hafa yfirleitt verið stórskemmtilegir og undanfarin ár miklir markaleikir. Fyrri leik liðanna á þessu tímabili lauk með sigri Tottenham eftir að hafa lent 2-0 undir. Arsenal menn komust einnig yfir í þessum leik með marki frá Walcott á 5.mínútu leiksins. Van der Vaart jafnaði þó aftur leikinn einungis tveimur mínútum síðar með flottu skoti. En Arsenal menn tóku þá völdin á vellinum og bættu við tveimur mörkum frá Nasri og Van Persie. Mínútu fyrir lok fyrir hálfleiks náði Huddlestone að minnka muninn fyrir Tottenham. Staðan því 2-3 í hálfleik. Síðari hálfleik var hörkuspennandi líkt og sá fyrri og bæði lið áttu fín færi. Það var svo maður leiksins, Van der Vaart, sem skoraði síðasta mark leiksins þegar hann jafnaði metin fyrir Tottenham úr vítaspyrnu á 71.mínútu. Leiknum lauk því með jafntefli 3-3 í stórskemmtilegum leik.
Gareth Bale PFA leikmaður ársins
Gareth Bale var í kvöld útnefndur leikmaður tímabilsins af leikmönnum deildarinnar. Er hann fjórði leikmaður Tottenham til að fá þessi verðlaun, en áður hafa þeir Pat Jennings ´75-´76, Clive Allen ´86-´87, David Ginola ´98-´99 unnið til þessa verðlauna.
Bale var einnig tilnefndur til verðlaunanna Besti ungi leikmaður deildarinnar, en þau hlaut Jack Wilshere.
Meistaradeildardraumurinn úti
Tottenham tók á móti Real Madrid á White Hart Lane í síðari viðureign liðanna í 8 liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Fyrri leiknum lauk með 4-0 sigri Madrid manna og því var ansi stórt verk fyrir höndum fyrir leikmenn Tottenham ef þeir ætluðu sér áfram í undanúrslit keppninnar. Leikmenn Tottenham ætluðu sér þó ekki að gefast upp án baráttu og gáfu allt í leikinn. Mark var dæmt af liðinu og skot höfnuðu í tréverkinu. Einnig vildu leikmenn fá vítaspyrnu í nokkur skipti en dómarinn var alls ekki á sama máli og virtist bara ekkert ganga upp hjá liðinu. Að lokum var það Ronaldo sem skoraði eina mark leiksins fyrir Madrid menn á 50.mínútu leiksins. Real Madrid fara því áfram í undanúrslitin og mæta löndum sínum í Barcelona en þátttöku liðsins er lokið í keppninni að þessu sinni. Liðið spilaði stórskemmtilegan bolta í þessari keppni og var eitt af skemmtilegri liðum keppninnar og ber þvi höfuðið hátt þrátt fyrir að komið sé að endalokum þetta árið. Liðið spilaði 12 leiki, skoraði í þeim 25 mörk, fékk á sig 19 mörk og tapaði einungis 4 leikjum.
Tottenham 3 – Stoke 2
Tottenham tók á móti Stoke á White Hart Lane í leik helgarinnar. Þrátt fyrir slæm úrslit í Meistaradeildinni mættu leikmenn ákveðnir til leiks og uppskáru 3 stig, fyrsta sigur liðsins í síðustu 5 leikjum. Leiknum lauk með 3-2 sigri Tottenham en öll 5 mörkin komu í fyrri hálfleik leiksins. Peter Crouch kom Tottenham yfir á 10.mínútu og átta mínútum síðar bætti Modric við öðru marki og staðan því orðin 2-0 fyrir heimamenn. Fyrrum leikmaður Spurs, Etherington náði svo að minnka muninn fyrir Stoke þegar um hálftími var liðinn af leiknum. Tíu mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks bætti Crouch svo við öðru marki sínu og þriðja marki Tottenham. En Stoke menn voru ekki hættir og Jones náði að minnka muninn í 3-2 þegar þrjár mínútur voru til loka fyrri hálfleiks. Í síðari hálfleik áttu bæði lið möguleika á að bæta við marki en það tókst ekki og lokatölur því 3-2.
Stórtap í Meistaradeildinni
Tottenham heimsótti Real Madrid á Santiago Bernabeu í fyrri viðureign liðanna í 8 liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Leikmenn Tottenham höfðu spilað góðan bolta og hræddust ekkert þótt andstæðingarnir væru gríðarsterkir. En rautt spjald, sem Peter Crouch nældi sér í á fyrsta korteri leiksins, þýddi það að Read Madrid var of stór biti fyrir Tottenham og fóru heimamenn með sigur af hólmi 4-0 með mörkum frá Adebayor(2), Di Maria og Ronaldo. Eru því vornir Tottenham um sigur í Meistaradeildinni orðnar ansi litlar. Seinni leikurinn er þó eftir og aldrei að vita hvað gerist þar eins og hefur sýnt sig áður í þessari keppni.
Klúbbferð Tottenham – Blackpool
Örfá sæti laus – síðasti skráningardagur föstudaginn 8.apríl kl:12:00
Tottenham klúbburinn á Íslandi efnir nú til hópferðar á leik liðsins í samvinnu við Express ferðir. Farið verður á leik Tottenham gegn Blackpool í Úrvalsdeildinni þann 7.maí næstkomandi. Nánari tilhögun ferðar:
Flogið verður út föstudaginn 6.maí frá Keflavík kl.7:00. Lent verður á Gatwick flugvelli ca. þremur tímum síðar og þaðan flytur rúta hópinn á hótelið Travelodge London City Road Hotel. Leikurinn fer fram laugardaginn 7.maí og hefst kl.17:30 að staðartíma. Flogið verður aftur heim sunnudaginn 8. maí frá Gatwick kl. 20:25 að staðartíma en rúta mun sækja hópinn á hótelið. Verð á mann í tvíbýli er kr. 89.900 fyrir meðlimi Tottenham klúbbsins (aðrir greiða örlítið hærra gjald) og er innifalið í því, flug+skattar, hótel m. morgunmat, akstur til og frá flugvelli, íslensk fararstjórn og miði á leikinn. Allar nánari upplýsingar um ferðina og bókun á henni má finna hér.
Enn eitt markalausa jafnteflið
Tottenham heimsótti Wigan í leik helgarinnar á DW leikvanginn. Aftur var um svipaða stöðu að ræða og í síðustu umferð, leikmenn Tottenham þurftu stig í baráttunni um 4.sætið en Wigan menn eru í bullandi fallbaráttu og hvert stig þeim mikilvægt. Ánægjulegt var að sjá að Huddlestone var mættur á bekkinn eftir langa fjarveru vegna meiðsla en hann kom þó ekki við sögu í þessum leik. Wigan menn voru öllu betri í leiknum en Gomes sá um að halda markinu hreinu. Á hinum enda vallarins gekk ekkert upp þennan daginn og lítið um hættulegar sóknir. Leiknum lauk því með markalausu jafntefli. Úrslit annarra leikja um helgina þýða að róðurinn er orðinn ansi erfiður fyrir leikmenn Tottenham í baráttunni um fjórða sætið en þó getur allt gerst.





