Spurs 2 – WBA 2

0
679

Tottenham tók á móti WBA á White Hart Lane í leik helgarinnar. Leikurinn markaði tímamót fyrir Jermain Defoe en hann skoraði sitt 100. mark fyrir klúbbinn í 254 leikjum og jafnfram 1000.mark liðsins í ensku Úrvalsdeildinni þegar hann kom Tottenham yfir 2-1 í leiknum. Odemwingie kom WBA yfir snemma í leiknum og Pavlychenko jafnaði þegar hálftími var liðinn af leiknum. Defoe kom liðinu yfir eins og áður sagði á 67.mínútu leiksins en því miður dugði það ekki til að hirða öll þrjú stigin því Cox jafnaði metin fyrir WBA á 81.mínútu og skildu því liðin jöfn 2-2 og deildu með sér stigunum.

Lið Spurs: Gomes, Kaboul, Dawson, Gallas, Ekotto (Sandro 8), Van der Vaart, Huddlestone (Lennon 63), Modric, Bale, Defoe, Pavlyuchenko (Crouch 87). Ónotaðir varamenn: Cudicini, Bassong, Jenas, Pienaar.