Tottenham heimsækir Manchester United á Old Trafford í leik helgarinnar. Leikurinn er síðdegisleikur dagsins og hefst kl.:16:30 að íslenskum tíma. Leikurinn er að sjálfsögðu sýndur á Ölveri eins og allir aðrir leikir liðsins og um að gera að horfa á leikinn í góðum félagsskap og hvetja leikmenn okkar áfram.
Jafntefli gegn Everton á WHL
Tottenham og Everton mættust í hádegisleik helgarinnar á White Hart Lane, en þetta var einnig klúbbferð hjá íslenska Tottenham klúbbnum. Leikurinn var mjög jafn og lauk með jafntefli 1-1. Everton komst yfir með marki frá Leighton Baines beint úr aukaspyrnu en enginn annar en Van Der Vaart jafnaði leikinn fyrir Tottenham, en hann er búinn að vera í miklu stuði undanfarið. Enn á ný var það Crouch sem átti stoðsendinguna á Van Der Vaart. Skiptu liðin því með sér stigunum og situr Tottenham í 5.sæti deildarinnar eftir umferðina með 15 stig.
Tap gegn Inter – Bale með þrennu
Tottenham heimsótti Inter á heimavöll þeirra, San Siro í vikunni í stórleik A-riðils en liðin sátu í fyrsta og öðru sæti riðilsins fyrir umferðina. Mikil spenna var í stuðningsmönnum Tottenham fyrir leikinn enda gerast leikirnir varla stærri og urðu vonbrigðin því mikil þegar staðan var orðin 3-0 Inter í vil eftir aðeins stundarfjórðungs leik. Eftir aðeins 68 sekúndna leik náði Zanetti að skora framhjá Gomes í markinu eftir að varnarmenn Tottenham sofnuðu á verðinum. Aðeins nokkrum mínútum síðar fékk Gomes að líta rauða spjaldið og Inter menn fengu vítaspyrnu sem Eto´o skoraði úr. Modric fór af velli í stað Cudicini. Á 15. mínútu var það svo Stankovic sem kom boltanum í netið og útlitið orðið ansi svart fyrir leikmenn Tottenham. 10 mínútum fyrir leikslok bætti Eto´o svo við öðru marki fyrir Inter og staðan orðin 4-0 og þannig stóð í leikhléi. En leikmenn Tottenham mættu ákveðnari til leiks í síðari hálfleik og Bale sá um að rétta aðeins úr kútnum fyrir gestina. Hinn ungi og efnilegi leikmaður átti stórleik í síðari hálfleik og skoraði öll 3 mörk Tottenham í leiknum og sína fyrstu þrennu á ferlinum. Tíminn var þó ekki nægur til að jafna leikinn og fór því Inter með sigur af hólmi 4-3.
Spurs í Champions League í kvöld
Tottenham heimsækir núverandi Meistara Evrópu þegar þeir heimsækja Inter á San Siro í kvöld. Leikurinn hefst kl.18:45 í kvöld og hvetjum við stuðningsmenn til að mæta á Ölver í kvöld og horfa á leikinn í góðum félagsskap og styðja strákana okkar.
Klúbbferð á Tottenham – Everton
Tottenham klúbburinn á Íslandi efnir nú til hópferðar á leik liðsins í samvinnu við Úrval Útsýn. Farið verður á leik Tottenham gegn Everton í Úrvalsdeildinni þann 23. október næstkomandi. Nánari tilhögun ferðarinnar má lesa hér fyrir neðan:
ATH! Aðeins 5 miðar eftir í ferðina og lokafrestur til að skrá sig í ferðina er föstudagurinn 8.október kl.10:00!
Mikilvægur sigur gegn Aston Villa
Tottenham krækti sér í þrjú mikilvæg stig eftir sigur á Aston Villa á White Hart Lane í umferð helgarinnar. Villa menn byrjuðu betur og náðu forystu eftir rúmlega stundarfjórðungs leik með marki frá Albrighton. Bæði lið áttu svo ágætisfæri en á síðustu mínútu fyrri hálfleiks náði Van der Vaart að jafna leikinn. Pavlyuchenko gaf háan bolta inn í teiginn á Crouch sem skallaði fyrir markið á Van der Vaart sem skallaði boltann í netið. Ein breyting var gerð í hálfleik, Lennon kom inná fyrir Pavlyuchenko. Bæði lið sóttu stíft í seinni hálfleik og áttu góð færi til að komast yfir í leiknum. Á 75.mínútu náðu Tottenham menn loksins forystu í leiknum og enn á ný voru það Crouch og Van der Vaart. Lennon gaf háa sendingu inn í teiginn á fjarstöngina þar sem Crouch skallaði boltann fyrir markið og Van der Vaart þrumaði honum í netið. Staðan 2-1 og fleiri urðu mörkin ekki.
Fyrsti sigurinn í Meistaradeildinni
Tottenham tók á móti FC Twente í fyrsta heimaleik sínum í Meistaradeildinni. Gleðifréttir kvöldsins voru þær að Gomes var mættur aftur á milli stanganna en hans hefur verið sárt saknað. Og hann sýndi einmitt hvað í honum býr á upphafsmínútum leiksins er hann varði frábærlega með annarri hendinni þegar leikmaður Twente reyndi að vippa yfir hann. Eftir erfiðar upphafsmínútur náðu Tottenham menn tökum á leiknum og áttu góð færi sem þeim tókst þó ekki að koma í netið. Undir lok fyrri hálfleiks var brotið á Crouch innan vítateigs og dómarinn dæmdi víti. Van der Vaart steig á vítapunktinn fullur sjálfstraust eftir að hafa skorað úr víti gegn Wolves um daginn. En í þetta skiptið varði markvörður Twente skotið frá honum og staðan var jöfn í hálfleik. En Van der Vaart bætti fyrir það í síðari hálfleik eftir aðeins tveggja mínútna leik. Crouch skallaði boltann fyrir Van der Vaart inni í teig og hann þrumaði í netið. Stuttu síðar bættu Tottenham menn öðru marki við en það skoraði Pavlyuchenko úr vítaspyrnu sem dæmd var þegar Bale var felldur inni í teig. Staðan því orðin 2-0 fyrir Tottenham. Á 55. mínútu náðu Twente menn að minnka muninn með marki frá Chadli eftir klaufaskap í vörn Tottenham. Stuttu síðar fékk Van der Vaart reisupassann eftir að hafa fengið sitt annað gula spjald. En leikmenn Tottenham héldu haus og bættu við tveimur mörkum, öðru úr vítaspyrnu sem Pavlyuchenko tók og hitt skoraði Bale eftir misheppnaða skallasendingu leikmanns Twente. Leiknum lauk því með 4-1 sigri Tottenham.
West Ham 1 – Tottenham 0
Tottenham tapaði sínum fyrsta útileik um helgina þegar þeir heimsóttu West Ham á Upton Park. Liðið var mikið breytt frá leiknum gegn Arsenal í vikunni. Frederic Piquionne skoraði eina mark leiksins undir lok fyrri hálfleiks. Robert Green sá til þess að heimamenn unnu sinn fyrsta leik í deildinni á þessu ári með frábærri markvörslu og leikmenn Tottenham fundu einfaldlega ekki leið framhjá honum þennan daginn.
Tap gegn Arsenal í Carling Cup
Tottenham tók á móti Arsenal í þriðju umferð Carling Cup bikarsins. Bæði lið voru mjög breytt því sem áhangendur liðanna eru vanir og má meðal annars nefna það að Pletikosa, Caulker og Sandro voru að spila sinn fyrsta leik fyrir liðið. Fyrri hálfleikur var tíðindalítill en gestirnir náðu þó að setja mark sitt á leikinn. Á 16. mínútu náði Lansbury að koma boltanum í netið og koma Arsenal yfir. En breytingar hjá Harry í hálfleik skiluðu sér strax á fyrstu mínútum síðari hálfleiks en þá náði Keane að jafna leikinn fyrir Tottenham menn. Bæði lið áttu svo ágætisfæri til að skora sigurmarkið en það tókst ekki í venjulegum leiktíma og því var framlengt. Á fyrstu 10 mínútum framlengingar fengu Arsenal menn 2 vítaspyrnur eftir brot Bassong og Caulker. Nasri tók bæði vítin og skoraði af öryggi. Arshavin bætti svo við einu marki í viðbót og hafði Arsenal því betur að þessu sinni, 4-1.
Tottenham spilar í Carling Cup í kvöld
Tottenham tekur á móti erkifjendum sínum í Arsenal í kvöld á White Hart Lane í deildarbikarnum, Carling Cup. Harry hefur gefið það út að hann muni nýta liðshópinn í kvöld, þar sem margir af þeim sem hafa verið að spila undanfarnir eru meiddir eða tæpir auk þess sem þeir sem minna hafa spilað þurfi að fá að spila. Meðal þeirra sem mun líklegast fá að spreyta sig er Sandro, en hann kom til liðsins í byrjun september og verður forvitnilegt að fylgjast með honum. Mjög líklegt þykir að einhverjir ungir leikmenn fái sæti á bekknum eða fái jafnvel að spreyta sig í byrjunarliðinu. Leikurinn hefst kl.18:45 að íslenskum tíma og verður m.a. sýndur á Ölveri.





