Klúbbferð á Tottenham – Everton

0
722

Tottenham klúbburinn á Íslandi efnir nú til hópferðar á leik liðsins í samvinnu við Úrval Útsýn. Farið verður á leik Tottenham gegn Everton í Úrvalsdeildinni þann 23. október næstkomandi. Nánari tilhögun ferðarinnar má lesa hér fyrir neðan:

 

ATH! Aðeins 5 miðar eftir í ferðina og lokafrestur til að skrá sig í ferðina er föstudagurinn 8.október kl.10:00!

 

Flogið verður út föstudaginn 22.október frá Keflavík kl.7:00. Lent verður á Gatwick flugvelli ca. þremur tímum síðar og þaðan flytur rúta hópinn á hótelið Hilton Docklands Riverside Hotel. Leikurinn fer fram laugardaginn 23.október og hefst kl.12:45 að staðartíma. Flogið verður aftur heim sunnudaginn 24. október frá Gatwick kl. 20:25 að staðartíma en rúta mun sækja hópinn á hótelið kl. 16:30. Verð á mann í tvíbýli er kr. 92.000 fyrir meðlimi Tottenham klúbbsins (aðrir greiða örlítið hærra gjald) og er innifalið í því, flug+skattar, hótel m. morgunmat, akstur til og frá flugvelli í London, íslensk fararstjórn og miði á leikinn. Allar nánari upplýsingar um ferðina og bókun á henni má finna hér.