Tveir ungir leikmenn hafa verið seldir frá félaginu. Andy Barcham var seldur til Gillingham fyrir nokkrum dögum og í dag var tilkynnt um félagaskipti Charlie Daniels til Leyton Orient. Hvorugum þeirra tókst að vinna sér inn sæti í aðalliði liðsins og óskum við þeim alls hins besta í framtíðinni hjá nýjum liðum.
Dregið í FA bikarnum
Dregið hefur verið í 4.umferð FA bikarsins og mætir Tottenham liði Manchester United á Old Trafford.
Leikurinn fer fram laugardaginn 24. janúar og hefst kl.17:15
Sigur í fyrsta leik ársins
Tottenham vann sigur í sínum fyrsta leik á nýju ári. Tók liðið á móti Wigan á White Hart Lane í 64 liða úrslitum FA bikarkeppninnar og lauk leiknum með 3-1 sigri heimamanna. Pavlyuchenko kom Tottenham yfir og Modric bætti öðru marki við áður en Camara náði að minnka muninn fyrir Wigan. Pavlyuchenko gulltryggði svo sigurinn með marki í uppbótartíma. Tottenham er því komið áfram í 32 liða úrslit bikarsins og eru mótherjar næstu umferðar Manchester United.
Tap í síðasta leik ársins
Tottenham tapaði síðasta leik ársins gegn botnliði West Bromwich Albion á Howthorns vellinum. Leiknum lauk með 2-0 sigri heimamanna í leik þar sem Ekotto fékk að líta rauða spjaldið. Mörk WBA skoruðu þeir Bednar og Beattie.
Markalaust jafntefli
Tottenham og Fulham gerðu markalaust jafntefli þegar síðarnefnda liðið mætti í heimsókn á White Hart Lane á öðrum degi jóla. Tottenham hafði nokkra yfirhönd í leiknum en kom boltanum ekki framhjá sterkri vörn Fulham manna og því deildu liðin með sér stigunum.
Stalteri kveður
Tottenham gaf út yfirlýsingu þess efnis að félagið hefði komist að samkomulagi við Paul Stalteri að rifta samningnum hans. Var það gert að vilja beggja aðila og er honum því frjálst að semja við nýtt félag. Samningur hans var í gildi út þetta tímabil en ekki stóð til að endurnýja hann og komust báðir aðilar því að fyrrgreindri niðurstöðu.
Stalteri var keyptur til félagsins sumarið 2005 og lék hann alls 56 leiki fyrir félagið og skoraði í þeim 3 mörk, en það eftirminnilegasta af þeim hlýtur að teljast sigurmarkið í leik gegn West Ham vorið 2007.
Um leið og við þökkum Stalteri fyrir hans framlag til liðsins á sl. þremur árum þá óskum við honum góðs gengis í framtíðinni, en hann hefur samið við þýska liðið Borussia Munhcengladbach.
Enn eitt tapið á St.James´ Park
Tottenham tapaði fyrir Newcastle á St James Park í síðasta leiknum fyrir jólatörnina. Leiknum lauk með 2-1 sigri Newcastle, en sigurmarkið kom í byrjun uppbótartímans í seinni hálfleik. Það var N’Zogbia sem kom Newcastle yfir en Modric jafnaði fyrir Tottenham. Duff kom svo inná sem varamaður á lokamínútunum og skoraði sigurmark leiksins.
Tottenham áfram í 32 liða úrslit UEFA Cup
Tottenham komst áfram í 32 liða úrslit UEFA Cup eftir að hafa gert jafntefli við Spartak Moskvu á White Hart Lane í síðasta leik riðlakeppninnar. Tottenham nægði eitt stig úr leiknum til að tryggja sér annað sætið í riðlinu og það tókst með mörkum frá Luka Modric og Tom Huddlestone en Dzuba hafði áður komið Spartak Moskvu í 2-0.
Dregið í UEFA Cup
Nú í hádeginu var dregið í 32.liða úrslit og 16. liða úrslit í UEFA Cup. Tottenham var síðasta liðið upp úr pottinum í 32. liða úrslitunum og mætir Shaktar Donetsk og fer fyrri leikurinn fram í Úkraínu og sá síðari í London. Komist liðið áfram í 16. liða úrslitin mætir það annað hvort liði Aston Villa eða CSKA Moskvu og verður útileikurinn spilaður fyrst og heimaleikurinn þar á eftir.
Evrópuleikurinn í kvöld
Leikurinn gegn Spartak Moskvu í UEFA Cup í kvöld verður ekki sýndur á neinum stað svo að við vitum til en við bendum fólki á að hægt er að kaupa leikinn á Spurstvonline á tottenhamhotspur.com fyrir þá sem hafa áhuga á slíku.





