Gífurleg vonbrigði

0
648

Draumar Tottenham um að sigra bikarkeppnina þetta árið fóru út um þúfur þegar liðið beið lægri hlut fyrir Leicester 3-2 á sunnudagskvöld. Spurs voru komnir tveimur mörkum yfir rétt fyrir hálfleik en fengu síðan á sig mark sem breytti leiknum mikið.

Martin Jol gerði tvær breytingar á byrjunarliðinu, Rasiak og Kelly komu inn í stað Mido og Lee og er óhætt að segja að hvorugur þeirra hafi sett mark sitt á leikinn, þó svo að Kelly hafi misnotað frábært færi í stöðunni 2-1.

Spurs komust yfir með marki Jermaine Jenas um miðjan fyrri háfleikinn en hann potaði boltanum inn eftir að skalli Robbie Keane hafði farið í stöngina. Paul Stalteri skoraði síðan fyrsta mark sitt fyrir félagið rétt fyrir háfleik og var það mjög glæsilegt mark, ekkert ósvipað marki sem Kanoute skoraði gegn Man City á síðasta tímabili.

En Leicester minnkuðu muninn fyrir hálfleik og það var markið sem breytti leiknum og gaf þeim von eftir að hafa verið lakari aðilinn í fyrri hálfleik.

Leicester byrjuðu af krafti eftir hléið og jöfnuðu skömmu eftir það. Eftir markið var leikurinn frekar tíðindalítill en maður hafði það alltaf á tilfinningunni að annað hvort liðið myndi skora.

Sigurmark Leicester kom þegar 90 mínútur voru liðnar en markaskorarinn var jafnvel rangstæður þegar boltanum var leikið. Ekki gafst tími fyrir jöfnunarmark og féllu Spurs því úr FA Cup líkt og þeir gerðu í Deildabikarnum gegn Grimsby.

Nú er ljóst að eina von Tottenham um Evrópusæti er í gegnum deildina og til að auka líkur á því þarf liðið að hysja upp um sig buxurnar og sýna úr hverju þeir eru gerðir gegn Liverpool á Anfield á laugardaginn kemur.

Lið Spurs: Robinson 7, Stalteri 8, Kelly 5, Gardner 6, Dawson 7, Lennon 8 (Tainio 87), Brown 6 (Defoe 70), Carrick 6, Jenas 7, Keane 7, Rasiak 5. Ónotaðir varamenn: Cerny, Pamarot og Routledge

DEILA
Fyrri fréttMan City 0-2 Spurs
Næsta fréttKing að koma til