Spurs unnu Portsmouth 3-1 í kvöld eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik en öll mörk Spurs komu í þeim síðari. Það voru Ledley King, Mido og Jermain Defoe sem skoruðu mörkin en mark Defoe var hans fyrsta síðan í september.
Martin Jol stillti upp sama byrjunarliði og í síðustu leikjum en varð að gera breytingu í miðjum fyrri hálfleik þegar Teemu Tainio meiddist á hné. Inn á í hans stað kom Wayne Routledge eftir margra mánaða fjarveru og stóð hann sig ágætlega en vantar samt enn meiri leikæfingu.
Spurs byrjuðu leikinn vel og voru mun sterkari allan fyrri hálfleikinn og gáfu Portsmouth aldrei tækifæri að komast inn í leikinn. Þrátt fyrir það voru það gestirnir sem komust yfir en markið sjálft var stórglæsilegt.
Markið virtist drepa niður andann í Spurs liðinu og þeim tókst ekki að svara með marki fyrir hálfleik og þróun leiksins minnti svolítið á síðasta leik gegn Sunderland.
Spurs héldu áfram að þrýsta á Portmouth í upphafi síðari hálfleik og uppskáru loksins mark þegar Ledley King skoraði með skalla eftir hornspyrnu frá Carrick. Eftir markið bjóst maður við að Spurs myndu gefa í og klára leikinn en þeir hefðu getað lent aftur undir strax en Paul Robinson varði stórglæsilega frá Taylor.
Routledge var síðan tekinn útaf, en hann hafði komið inn á í fyrri hálfleik í stað Teemu Tainio, og inn á í hans stað kom Andy Reid. Fyrsta hlutverk hans var að taka aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig Portsmouth en spyrnan fór í hönd eins leikmanna Portmouth og var dæmd vítaspyrna.
Mido tók spyrnuna og skoraði 6. mark sitt á tímabilinu, þó svo að spyrna hans hafi verið allt annað en sannfærandi. Sigurinn var nú öruggur en Jermain Defoe bætti samt við þriðja markinu á 90. mínútu en þetta var fyrsta mark hans síðan í september.
Það verður að viðurkennast að liðið hefur ekki spilað sinn besta fótbolta í síðustu leikjum en samt tekist að sigra en Spurs lið síðustu ára hefði líklega ekki sigrað þessa leiki og sýnir það þá framför sem orðið hefur síðan Jol tók við.
Liðið situr nú í 4. sæti deildarinnar og á ekkert sérlega erfiða leiki yfir jólin en sá erfiðasti er líklega um helgina gegn Middlesboro á útivelli.
Lið Spurs: Robinson 8, Stalteri 7, Dawson 7, King 8, Lee 6, Jenas 6, Carrick 7, Davids 9, Tainio 6 (Routledge, 40), Keane 6 (Defoe 69), Mido 7, Routledge 6 (Reid 83). Ónotaðir varamenn: Kelly og Cerny






