Hálfur sigur unninn

0
615

Tottenham sigraði Burnley á White Hart Lane í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum Carling Cup. Leiknum lauk með 4-1 sigri Tottenham en síðari leikur liðanna fer fram þann 21.janúar á heimavelli Burnley. Burnley komst yfir með marki frá Paterson en ótrúleg endurkoma liðsins í síðari hálfleik tryggði Tottenham góðan sigur og gott veganesti inn í seinni viðureignina. Mörk Tottenham skoruðu þeir Dawson, O´Hara og Pavlyuchenko og svo varð Duff, leikmaður Burnley fyrir því óláni að skora í eigið mark.

Harry gerði tvær breytingar á liðinu frá sigurleiknum gegn Wigan í FA bikarnum en kaus þó að halda sig áfram við 4-4-2 leikkerfið. Liðið var þannig skipað að Gomes stóð á milli stanganna í markinu og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, Dawson, Woodgate og Bale. Á miðjunni léku þeir Lennon, Zokora, Modric og Bentley og frammi þeir Campbell og Pavlyuchenko. Á bekknum sátu þeir Alnwick, Gunter, Giovani, Taarabt, Boateng, Rocha og O´Hara.

 

Leikmenn Burnley komu ákveðnir til leiks fullir sjálfstraust enda búnir að leggja þrjú Lundúnalið að velli í bikarkeppninni, þau Chelsea, Arsenal og Fulham. Chris Eagles var sprækastur þeirra manna og átti nokkrar tilraunir að marki í upphafi leiks. Eftir korters leik fékk Eagles svo boltann á hægri kantinum og tók á sprett upp að vítateignum. Þar fór hann illa með þá Bale og Bentley og kom boltanum fyrir markið þar sem Paterson var einn og óvaldaður á fjærstönginni og átti ekki í vandræðum með að koma boltanum framhjá Gomes í markinu. Tíu mínútum síðar fengu þeir gott færi til að auka við forystuna þegar Eagles var enn á ferðinni og gaf fyrirgjöf á Blake en skot hans fór rétt framhjá markinu. Leikmenn Tottenham virtust eitthvað hressast við þetta færi og fóru að sækja meira. Stuttu síðar tók Dawson á sprett upp völlinn og gaf á Campbell, hann náði boltanum við endamörk vallarins og náði að koma boltanum fyrir markið þar sem Pavlyuchenko skallaði að markinu. En Duff kom Burnley mönnum til bjargar og sendi boltann aftur fyrir endamörk. Úr hornspyrnunni var Pavlyuchenko einnig nálægt því að skora en markvörður Burnley stóð fyrir sínu. Undir lok hálfleiksins fékk Bentley ágætis færi en inn vildi boltinn ekki. Staðan því 0-1 í hálfleik, gestunum í vil.

 

Harry gerði eina breytingu á liðinu í hálfleik. Bentley fór af velli og O´Hara kom inná í hans stað. Liðið virtist gjörbreytast við þessa skiptingu því leikur Tottenham batnaði til muna. Og strax í fyrstu sókn Tottenham fékk liðið hornspyrnu og var það enginn annar en O´Hara sem tók hornspyrnuna. Hann gaf inn í teiginn og smellhitti á hausinn á Dawson sem skallaði boltann í netið og skoraði þar með sitt fyrsta mark síðan í nóvember 2007. Staðan orðin jöfn 1-1 og bæði lið hungruð í sigur. En leikmenn Tottenham tóku fljótt völdin og O´Hara virtist staðráðinn í því að koma liðinu í úrslitaleikinn á Wembley. Hann átti ágætisfæri sem fór rétt yfir markið en á 52.mínútu gerði hann allt hárrétt og boltinn steinlá í netinu. Modric gaf góða sendingu á Pavlyuchenko sem lék á varnarmann Burnley og gaf svo fyrir á fjarstöngina þar sem O´Hara beið og stýrði boltanum undir Jensen í markinu. Staðan því orðin 2-1 fyrir Tottenham. Leikmenn Burnley virtust örlítið slegnir út af laginu en neituðu þó að gefast upp. Þeir fengu tvö ágætis færi til að jafna leikinn, fyrst skaut Blake rétt framhjá markinu og í seinna skiptið kom Gomes út úr markinu á hárréttum tíma og hirti boltann. Þegar rétt rúmlega klukkustund var liðin af leiknum voru það svo leikmenn Tottenham sem bættu við marki og var það Pavlyuchenko á ný. Bale gaf góða sendingu á Pavlyuchenko sem staðsettur var rétt fyrir utan vítateiginn. Hann lék á varnarmann Burnley áður en hann skaut boltanum framhjá Jensen í markinu. Staðan orðin 3-1 og var þetta þriðja mark Pavlyuchenko í tveimur leikjum. Tveimur mínútum síðar urðu leikmenn Burnley fyrir því óláni að senda boltann í eigið net og staðan því orðin 4-1, heimamönnum í vil. Leiknum lauk með sigri Tottenham en einvígið er langt frá því að vera lokið, seinni leikurinn fer fram þann 21.janúar á heimavelli Burnley.

 

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Dawson, Woodgate, Bale, Lennon, Zokora, Modric, Bentley(O´Hara), Campbell, Pavlyuchenko. Ónotaðir varamenn: Alnwick, Gunter, Giovani, Taarabt, Boateng og Rocha.