Harður skellur á heimavelli

0
656

Lið Tottenham þurfti að bíta í það súra epli að tapa fyrir leikmönnum Newcastle á White Hart Lane. Leikurinn hófst vel þegar Bent skoraði fyrsta mark leiksins og annað mark sitt í jafnmörgum leikjum. En við tóku fjögur mörk frá gestunum og lauk leiknum því með 4-1 sigri Newcastle.

     Ramos ákvað að prófa nýja taktík í þessum leik og hóf leikinn með þrjá framherja á vellinum. Liðið var þannig skipað að Robinson var í markinu og í vörninni spiluðu þeir Hutton, Dawson, Woodgate og O´Hara. Á miðjunni voru þeir Huddlestone, Zokora og Malbranque og frammi þeir Keane, Berbatov og Bent. Á bekknum sátu þeir Cerny, Chimbonda, Tainio, Taarabt og Lennon.

     Leikurinn fór frekar rólega af stað en gestirnir virtust örlítið sprækari og áttu meðal annars skot í þverslánna á fyrstu mínútum leiksins. Martins átti einnig skot að marki sem Robinson varði og einnig var hann vel á verði þegar Barton reyndi að koma boltanum framhjá honum. Stuttu síðar var Keane felldur inn í teig Newcastle manna og vildi hann fá vítaspyrnu en Bennett var ekki á sama máli og fengu leikmenn Spurs einungis hornspyrnu. Woodgate náði ágætis skalla að markinu en Harper varði vel. Keane átti svo skot að marki frá vinstri helmingi vítateigsins en boltinn fór framhjá markinu. En það var svo á 26.mínútu sem fyrsta markið leit dagsins ljós og var það nokkuð gegn gangi leiksins. Bent skallaði boltann framhjá Harper í markinu eftir fyrirgjöf frá Malbranque og staðan orðin 1-0 fyrir heimamenn og var þetta annað mark Bent í jafnmörgum leikjum. Bent og Berbatov áttu svo báðir færi en náðu ekki að klára þau. Það var svo ekki mikið um færi það sem eftir lifði hálfleiks, eða þar til í uppbótartíma. Butt skaut að marki rétt fyrir innan vítateiginn og boltinn hafnaði í vinstra horninu og staðan orðin jöfn 1-1 og þannig stóð í hálfleik.

     Leikmenn Newcastle komu mun ákveðnari til leiks í síðari hálfleik og fengu fljótlega ágætisfæri en á 51. mínútu náðu þeir forystu í leiknum. Dawson braut á leikmanni Newcastle rétt fyrir utan vítateiginn og Geremi tók aukaspyrnuna. Robinson stillti upp veggnum en eins og svo oft áður virtist hann ekki treysta veggnum og færði sig í hornið sem veggurinn var að dekka og því átti Geremi ekki í vandræðum með að koma boltanum í netið í hornið sem Robinson átti að verja. Staðan því orðin 1-2. Ramos þurfti greinilega að gera breytingu á liðinu enda ekkert að gerast inni á vellinum. Hann kaus því að taka Keane og Malbranque af velli og inná í hans stað komu þeir Taarabt og Lennon. Leikmenn Newcastle héldu þó áfram að sækja og hafði Robinson nóg að gera í markinu. Á 65. mínútu uppskáru þeir svo þriðja markið þegar Owen sótti inn í teiginn og skaut boltanum framhjá Robinson í markinu. Fljótlega eftir þriðja markið gerði Ramos sína síðustu skiptingu og tók hann Zokora af velli og setti Tainio inná. Ekki breytti skiptingin miklu því leikmenn Newcastle réðu öllu á vellinum og var það Owen sem átti næsta færi en skoraði þó ekki. Leikmenn Tottenham tóku aðeins við sér og átti Berbatov til að mynda góðan skalla en leikmenn Newcastle hreinsuðu á línu. Síðasta mark leiksins kom svo á 82. mínútu þegar Barton gaf á Martins sem kom boltanum framhjá Robinson og skoraði þar með fjórða mark Newcastle í leiknum. Leiknum lauk með stórsigri Newcastle og augljóst að Ramos þarf að taka leikmenn sína algjörlega í gegn enda frammistaða þeirra í leiknum til skammar.

Lið Spurs: Robinson, Hutton, Dawson, Woodgate, O´Hara, Huddlestone, Zokora(Tainio), Malbranque(Lennon), Keane(Taarabt), Berbatov, Bent. Ónotaðir varamenn: Cerny, Chimbonda.