Charlton 0 – Tottenham 2

0
664

Í kvöld kom það í hlut Tottenham að negla síðasta naglann í kistu Charlton er þeir lögðu þá að velli og sendu þá þar með niður í Championship deildina. Tottenham sigraði Charlton í sínum síðasta útileik á tímabilinu með tveimur mörkum gegn engu og voru það þeir Berbatov og Defoe sem skoruðu mörkin.

Leikmenn Tottenham byrjuðu leikinn vel og spiluðu ágætisbolta fyrstu mínúturnar en á 6.mín fengu liðsmenn Charlton hornspyrnu en náðu ekki að nýta sér hana. Spurs hóf þá sókn og King spyrnti löngum bolta fram á Berbatov sem tók vel við boltanum, hljóp framhjá El Karkouri og kláraði færið frábærlega þegar hann renndi boltanum framhjá Carson í markinu. Tottenham komið yfir og Charlton í vondum málum því þetta þýddi að þeir þurftu að skora 2 mörk til að eiga von á því að halda sér uppi í úrvalsdeildinni. Tottenham náði þó að pressa áfram eftir þetta og litu út fyrir að bæta jafnvel við marki en þegar leið á hálfleikinn komust leikmenn Charlton aðeins inn í leikinn. En staðan í hálfleik var þó 1-0 fyrir Tottenham. Í hálfleik var gerð ein breyting á liði Tottenham, Gardner kom inná í stað Rocha og er þetta í fyrsta sinn sem Gardner spilar eftir meiðsli. Leikmenn Tottenham virtust þó eitthvað slakari í seinni hálfleik en þeim fyrri og hleyptu Charlton of mikið inn í leikinn. Lennon fór út af á 60.mínútu og kom Malbranque inná fyrir hann. Leikmenn Charlton reyndu eins og þeir gátu en vörnin hélt hreinu og Defoe innsiglaði svo Spurs sigurinn með glæsilegu marki eftir að hafa komið inná á 84. mínútu í stað Robbie Keane. Með þessum sigri komst Tottenham upp í 6. sæti deildarinnar með 56 stig og á einn leik inni á Everton sem er í því fimmta með 57 stig. UEFA cup sætið er enn inni í myndinni og þarf liðið nú aðeins 2 stig úr tveimur síðustu leikjunum til að tryggja Evrópubolta á næstu leiktíð.