Hópferð Tottenhamklúbbsins

0
1065

Tottenhamklúbburinn á Íslandi verður með hópferð á leik Tottenham – Swansea sem fram fer á White Hart Lane , heimavelli Tottenham sunnudaginn 1. apríl nk.

.

UPPSELT Í FERÐINA

.

Þá er loksins komið að því , hópferð Tottenhamklúbbsins á Íslandi. 

.
Farið verður á leik Tottenham – Swansea sem fer fram á White Hart Lane sunnudaginn 1. Apríl 2012.

    Tottenham hefur verið að standa sig vonum framar á þessu tímabili og eru í 3. sæti deildarinnar sem stendur. Mikil barátta er framundan um að komast í meistaradeildina að ári og á Tottenham góða möguleika á að hreppa eitt af fjórum efstu sætunum í deildinni og um leið tryggja sér þátttökurétt í meistaradeildinni á næsta tímabili.

.

    Lið Swansea hefur verið að spila skemmtilegan fótbolta í vetur og eru sem stendur um miðja deild. Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson gekk til liðs við Swansea í janúar á láni frá Hoffenheim og hefur aldeilis staðið sig vel. Lagði t.a.m. upp sigurmark liðsins gegn Arsenal um daginn og svo skoraði hann fyrsta mark sitt fyrir Swansea í sigri á WBA ásamt því að skora bæði mörk liðsins gegn Wigan , með flottum skotum fyrir utan teig.

.

Von er á skemmtilegum leik milli tveggja liða sem spila góðan fótbolta.

.

Ferðatilhögun er eftirfarandi :

Flug

Flogið með Icelandair

31. mars KEF LHR FI 450 07:40 11:40

2. apríl LHR KEF FI 455 21:10 23:10

Gisting

Holiday Inn Express London City , nánar um hótel HÉR

275 Old Street

London EC1V 9LN

.

Leikurinn sjálfur er á sunnudeginum 1. Apríl kl. 16:00

.

Verð : 93.900.- á mann í tvíbýli

.

fyrir meðlimi Tottenhamklúbbsins á Íslandi

Aukagjald fyrir einbýli er 15.000 kr.

.

Innifalið :

Flug báðar leiðir m/sköttum , Gisting í tvær nætur á Holiday Inn Express London City m/ morgunmat , miði á leik Tottenham –Swansea sem fer fram 1. Apríl 2012 , skráning í Tottenhamklúbbinn á Englandi ( sem er skylda fyrir þá sem fá miða ) og íslensk fararstjórn.

ATH. Aukagjald kr. 2.500 fyrir þá sem EKKI eru meðlimir í í Tottenham klúbbnum á Íslandi. Greiðist fyrir brottför hjá klúbbnum.
Hægt er að skrá sig í Tottenhamklúbbinn HÉR:


Meðlimir í Tottenham klúbbnum í UK frá endurgreiðslu upp á 3.000.- fyrir brottför.

Skráning fer fram á heimasíðu VITA – farið á skráningarsíðu með að smella á :

.

SKRÁ SIG

Skráning í ferðina er hægra megin á heimasíðu VITA – tegund ferðar : Sportlíf Til : Tottenham