Ósigur gegn Man. Utd

0
696

Á sunnudaginn var fékk Tottenham lið Manchester United í heimsókn á WHL.  Sannkallaður stórleikur sem fór þannig að Man. Utd. fór með öll stigin heim eftir 1-3 sigur.   Tottenham spilaði vel í þessum leik og áttu sannarlega ekki skilið að tapa ,  hvað þá 1-3.  Mark Tottenham skoraði Defoe.

Tottenham byrjaði leikinn vel á sunnudaginn og réðu gangi leiksins á löngum köflum í fyrri hálfleik án þess þó að skapa sér merkileg færi.  Það besta kom þegar Lennon komst upp að endamörkum,  gaf hann fyrir á Adebayor á nærstöng sem náði ekki skoti á markið,  boltinn féll út í teiginn og þar kom Saha og setti boltann á markið.  Adebayor var þá fyrir og fékk boltann í sig og bjargaði um leið á línu.

tottenham_-_man_utd_hendi.jpgAdebayor náði samt að koma boltanum í netið en dómarinn hafði dæmt hendi á Adebayor en hann hafði komið lítillega við boltann með hendinni en samt sem áður strangur dómur, sem sjónvarpsmenn SKY héldu einnig fram í hálfleik.

Undir lok fyrri hálfleiks skoraði svo Rooney eftir hornspyrnu frá Young.  Staðan í hálfleik 0-1 sem var vægast sagt ósanngjarnt.

Tottenham byrjaði seinni hálfleikinn af miklum krafti og fannst manni að jöfnunarmarkið væri að koma ,  en í staðinn fyrir að jafna komst Man. Utd. í 0-2 sem var eins og köld vatnsgusa í andlitið.  Einbeytingarleysi í vörn Tottenham þegar Man Utd átti saklaust innkast á móts við vítateiginn var dýrkeypt og Nani komst upp að endamörkum og gaf fyrir og eftir smá darraðadans fékk Young boltann og smellti honum af krafti í fjærhornið úr þröngu færi – virkilega flott mark hjá honum.  Þetta mark dró verulega af Tottenham og virtist sem liðið næði ekki að komast í gang á nýjan leik.   Á 69. mínútu gerði svo Man Utd út um leikinn þegar Young skoraði aftur og þá með langskoti fyrir utan teig sem flaug efst í hornið , óverjandi fyrir Friedel í markinu.

Tottenham skoraði svo eitt mark í lokin þegar Defoe fékk boltann á miðjum vallarhelming Man. Utd og lék í átt að vítateignum og þegar hann var eins og 3-4 metra fyrir utan teig lét hann vaða á nærstöngina og skoraði gott mark.

Leikurinn fjaraði út og lokatölur 1-3 fyrir Man. Utd.

Tottenham var án Parker , Bale og VdV í þessum leik og munaði um minna.  Man. Utd sýndu í þessum leik hvað þeir geta verið hættulegir og náði sér í þrjú góð stig án þess að spila vel sem hefur verið algengt hjá þeim á þessari leiktíð.

.

Lið Tottenham í leiknum:

Friedel – Walker – King – Kaboul – Ekotto – Lennon ( Rose 84 ) – Livermore – Sandro ( Kranjcar 80 ) – Modric – Saha ( Defoe 80 ) – Adebayor

Ónotaðir varamenn :

Cudicini – Dawson – Nelsen – Giovani

.

.

Tölfræði úr leiknum

.

Skot á mark

Tottenham 9   Man Utd  5

.

Skot framhjá

Tottenham 9   Man Utd 1

.

Hornspyrnur

Tottenham 7   Man Utd 3

.

Með boltann

Tottenham 57 %  Man Utd 43 %

.

.