Blackburn og Tottenham skiptu með sér stigunum þegar liðin skildu jöfn á Ewood Park. Með jafnteflinu urðu evrópuvonir Blackburn að engu en Tottenham siglir áfram á miðjuróli í deildinni. Lokatölur leiksins voru 1-1, Berbatov kom Tottenham yfir en Pedersen jafnaði fyrir Blackburn.
Ramos gerði ekki miklar breytingar á liðinu þrátt fyrir slakan leik um síðustu helgi. Cerny kom þó í markið í stað Robinson sem á við ökklameiðsli að stríða og var því Forecast á bekknum. Í vörninni spiluðu þeir Hutton, Dawson, Woodgate og Chimbonda og á miðjunni þeir Lennon, Jenas, Zokora og Malbranque. Frammi voru þeir Keane og Berbatov. Á bekknum sátu ásamt Forecast þeir Gilberto, Huddlestone, Tainio og Bent.
Blackburn fékk fyrsta hættulega færi leiksins á 4.mínútu þegar Cerny var kominn út fyrir vítateiginn og ætlaði að sparka boltanum fram völlinn en boltinn fór beint í Bentley sem kom boltanum fyrir markið en Cerny náði að koma í veg fyrir mark að lokum. Tveimur mínútum síðar var svo komið að Tottenham að sækja. Malbranque gaf boltann á Jenas sem gaf boltann inn í teiginn þar sem Berbatov potaði boltanum í netið og staðan orðin 0-1 fyrir Tottenham. Jenas reyndi aftur stuttu síðar að koma boltanum á Berbatov og litlu munaði að það tækist. En þegar um hálftími var liðinn af leiknum náðu heimamenn að jafna leikinn. Boltinn barst til Bentley á hægri kantinum, sem lék vel á Chimbonda og gaf góða sendingu fyrir markið á Morten Gamst Pedersen sem kom boltanum í netið. Staðan orðin 1-1 en lítið var um dauðafæri það sem eftir lifði hálfleiks og því var jafnt í hálfleik.
Berbatov átti fyrsta hættulega færi síðari hálfleiks en Friedel var vel vakandi í markinu og varði vel. Cerny var einnig vel vakandi á hinum vallarhelmingnum þegar Roberts reyndi að koma boltanum framhjá honum. Malbranque komst svo í ágætisfæri eftir samspil frá Zokora og Lennon en ekki vildi boltinn inn fyrir marklínuna. Þrátt fyrir að færin kæmu ekki á færibandi þá átti Bentley ágætis skot og Keane var ekki langt frá því að koma Tottenham yfir en Nelson kom í veg fyrir það. Á 72. mínútu gerði Ramos breytingu á liðinu og var það tvöföld skipting. Chimbonda og Malbranque fóru af velli og inná í stað þeirra komu Gilberto og Huddlestone. 7 mínútum síðar kom svo síðasta skiptingin þegar Keane fór af velli og Bent kom inná í hans stað. Skiptingarnar gerðu þó ekki gæfumuninn í þetta skiptið enda tókst hvorugu liðinu að bæta við marki. Leikmenn Blackburn voru þó ósáttir að fá ekki víti undir loks leiksins en lokatölur leiksins voru eins og fyrr sagði 1-1.
Lið Spurs: Cerny, Hutton, Dawson, Woodgate, Chimbonda(Gilberto), Lennon, Jenas, Zokora, Malbranque(Huddlestone), Keane(Bent), Berbatov. Ónotaðir varamenn: Forecast, Tainio.






